Því miður náði ég og mín fjallafjöskylda ekki að fara norður vegna veikinda. Þannig að við vorum ekki þátttakendur í þessu bráðskemmtilega móti. En Stefán er búin að senda út úrslitin og birti ég þau hér með fyrir neðan. Fjölskyldan óskar nýkrýndum Íslandsmeisturum í íscrossinu sem og öðrum verðlaunahöfum til hamingju og óskar þeim velfarnaðar í mótum sumarsins.
Samhliða braut – opinn flokkur.
1. Reynir Stefánsson
2. Björn Jónsson
3. Ármann Örn Sigursteinsson
Samhliða braut - +35 ára
1. Árni Grant
2. Gunnar Hákonarson
3. Sigurður Sigþórsson
Hillcross
1. Ásgeir Frímannsson
2. Fannar Magnússon
3. Helgi Reynir Árnason
Íscross – kvennaflokkur
1. Signý Stefánsdóttir
2. Andrea Dögg Kjartansdóttir
3. Sigþóra Kristjánsdóttir
Íscross – standardflokkur
1. Kári Jónsson
2. Orri Pétursson
3. Steingrímur Kristjánsson
Snocross – unglingaflokkur
1. Bjarki Sigurðsson
2. Hafþór Grant
3. Árni Ásbjarnarson
Snocross – Kvennaflokkur
1. Vilborg Daníelsdóttir
2. Signý Stefánsdóttir
3. Berglind Ósk Guttormsdóttir
Snocross - +35 ára
1. Gunnar Hákonarson
2. Sigurður Sigþórsson
3. Birgir Guðbjörnsson
Snocross – sportflokkur
1. Baldvin Þór Gunnarsson
2. Páll Snorrason
3. Ármann Örn Sigursteinsson
Snocross – Meistaraflokkur
1. Steinþór Guðni Stefánsson
2. Reynir Hrafn Stefánsson
3. Ásgeir Frímannsson
Ísspyrna
1. Ásmundur Stefánsson
2. Aðalbjörn Tryggvason
3. Magnús Pálsson
Icelandair gaf sigurvegurunum flug að eigin vali, Flugfélag Íslands gaf öðru sæti flug að eigin vali og Jarðböðin gáfu þriðja sætinu 10 miða kort. Myndir frá keppni í hillcrossi og samhliða braut ættu að koma þarna inn síðar í dag.