Wednesday, 12 October 2011 22:47

Myndband með Jeff Alessi tekið í heimabraut þeirra bræðra

Written by 

Jeff Alessi, bróðir Mike Alessi, er mjög frambærilegur ökumaður þó svo að hann hafi staðið í skugga bróðir síns hin síðari ár.  Einhver staðar las ég þá sögu þegar þeir voru ungir drengir, að þá hafi faðir þeirra komið öskuillur að Jeff Alessi við æfingu í einni brautinni og hellt sér yfir hann fyrir að gera lítið úr Mike Alessi því hann hefði hreinlega snýtt honum.  Já, sem sagt í "den" að þá var Jeff Alessi betri ökumaður en faðirinn valdi Mike Alessi til að vera meistaraefnið.  Spurning hvernig slíkt byggir upp karekter í piltum en maður sér alla vega aldrei myndband þar sem Tony Alessi, faðir þeirra, kemur að þjálfun Jeff Alessi þó svo að ég efist ekki um það að hann hafi eitthvað með það að gera.  Hér má sjá flott myndband tekið af Jeff Alessi í heimabraut þeirra bræðra þar sem þeir leggja hana þar sem þeir stökkva yfir girðingu o.fl. til að nýta að svæði sem hún liggur á.  Jeff Alessi mun keppa fyrir DNA Shred Stix/Star Racing/Yamaha og verður í 450 flokknum.

 

Read 259 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:46