Um nokkurn tíma hef ég haft undir höndum TXC Pro 2.1 skó til að prófa og í raun til eignar í dag. Það hefur verið markmið mitt lengi að taka eina og eina vöru sem er á markaði fyrir hjólamenn, prófa hana og segja svo mitt álit á viðkomandi vöru. Tekið skal fram að með þessu mun ég segja mitt álit óháð því hver á í hlut og ef mér líkar ekki varan, að þá mun það jafnframt koma fram líka. Persónulega var ég nokkuð spenntur að prófa þessa skó því ég hafði lesið mig til um þá nokkru áður en ég fékk þá í hendur í leit minni af arftaka á þeim skóm sem ég hef verið í síðustu tvö ár. En byrjum á byrjunni.
Skór er sá búnaður sem er jafnmikilvægur og góður hjálmur og góðir skór eru gulls ígildi í þessu sporti. Ekki nóg með að þeir hlífa fætinum, heldur veita þeir einnig stuðning ásamt að vera oft á tíðum sá snertiflötur sem við nýtum hvað mest þegar við hjólum. Að spara við sig í skóbúnaði er að mínu mati, eins og að pissa í skóinn sinn eins og Jón Baldvin pólitíkus komst svo vel að orði hér í "den". Í raun á aldrei að fara að hjóla án þess að vera í þar til gerðum skóm og ein auðveldasta leiðin til að skemma á sér fæturnar er að hjóla í vondum skóm eða t.d. strigaskóm. Góðir skór veita vörn gegn kulda, bleytu og jafnframt tryggja að fæturnir séu heilir.
TCX Pro 2.1 skór eru ítalskir að uppruna eins og svo flestir hágæða skór eru þar sem Ítalir virðast hafa einstak lag á að búa til flotta og nothæfa hönnun þegar kemur að skóbúnaði. Í raun má segja að flest topp merkin í skóbúnaði eru framleidd á Ítalíu. Þannig að eitthvað eru þeir að gera rétt þarna suðurfrá. TCX skó er hægt að fá frá stærðinni 7-14 (amerískar stærðir). Hér má svo sjá hvað skórnir eru búnir til úr eða samanstanda af (sorrý, allt á ensku, nenni ekki að þýða).
-Water Resistant Microfiber
-Padded Front And Ankle Area For Better Comfort And Flexibility
-Breathable fabric Lining
-New Shin Plate With Embossed Logo
-Polyurethane Toe Protector
-Steel Toe Cap
-Inside Rubber Heat Guard
-Rear Polyurethane Heel Protector
-Ankle And Malleolus Protection
-4 New Designed Aluminum Adjustable Buckles
-Dual Compound Rubber Sole
Við fyrstu sýn þegar ég tók þá úr kassanum að þá fannst mér þeir mjög áberandi hvítir og við viðkomu, að þá fannst mér leðrið allt að því plastkennt. Það sem vakti athygli mína og ég hafði tekið eftir í lestri mínum um skónna var hreyfanleikinn. Inn í skónum er sokkur eins og það kallað og persónulega er ég hrifnari af skóm með þessa innri sokka sem staðalbúnað. Þessi sokkur veitir ákveðna vernd hvað ökla varðar og gerir það að verkum að t.d. að óhreinindi eins og t.d. sandur kemst síður að fætinum. Þegar ég fór í þá fyrst, að þá var tilfinningin nokkuð frábrugðin því sem ég á að kynnast í Gaerne S10 skónna sem ég hef notað lengi og finnst mjög fínir. Þegar maður fer í nýja skó, að þá er maður alltaf smeykur um að þeir séu stífir og það taki nokkurn tíma að aðlaga þá að fætinum. Svo var ekki með þessa skó og kom það mér á óvart þegar ég notaði þá fyrst hvað ég var lítið var við að ég væri í splunkunýjum skóm.
En hvernig var í raun tilfinninginn að hjóla í þeim? Stuðningur við öklann er mjög góður og sólarnir eru þess eðlis að það er gott að stíga á pedalana og þeir slitna ekki svo auðveldlega (hef verið að nota þá síðan í júní). Í fyrstu fannst mér vesen að smella skónum, þ.e. mér fannst smellurnar full litlar og er átakið ekki nógu gott af maður vill hafa skónna mjög þétta. Einnig var ég smá tíma að stilla smellurnar með tilliti til þess að vera í spelkum og ég vill ekki hafa skónna mjög þétta. En að þessu frátöldu og eftir að ég byrjaði að labba í þeim, að þá fannst mér þeir mjög þægilegir og í raun þægilegustu skór sem ég hef verið í hingað til. En eins og ég sagði hér áður, að þá er stuðningur við öklann mjög góður og maður rennur ekki af pedalnum bara "si sona" þökk sé sólunum. Einnig fannst mér skórnir léttari á fæti en þeir sem ég átti fyrir sem ég var mjög sáttur við hingað til. Þannig að eftir eitt skipti var ég strax mjög hrifinn af skónum.
Ánægja mín átti bara eftir að aukast eftir því sem á leið og eftir því sem ég fór oftar í þá. Skórnir aðlöguðust nánast strax og urðu betri eftir því sem á leið og sitja vel á fæti. Sá hluti sem ég er hvað hrifnastur af er að þeir halda sér mjög vel, þ.e. að það sér ekki mikið á þeim eftir notkun og mjög auðvelt er að þrífa þá. Var það í raun auðveldara en ég átti von á og virðist sem þetta plastkennda yfirbragð hrindi betur frá sér eða þá að drullan festist síður við þá og skórnir taka síður lit af drullunni sem þeir verða fyrir. Brautin í Þorlákshöfn er gott dæmi um braut sem gefur skónum brúnt yfirbragð eftir notkun og iðulega hefur það reynst þrautinni þyngri að hreinsa þessa brúnu slekju af skónum. TCX Pro 2.1 virðast þola þetta betur en aðrir skór sem ég hef verið í hingað til og þarf ég ekki að nota sápur að sama marki og ég hef þurft áður til að fá hvíta litinn til að koma vel fram.

Á heildina litið var ég mjög ánægður með þessa skó, það ánægður að þetta eru skór númer eitt hjá mér í dag. Mér finnst þeir mjög þægilegir fyrir utan að veita góðan stuðning. Það er mjög auðvelt að þrífa skónna og halda þeir lit betur en margir af þeim skóm sem ég þekki. Verðið á skónum er líka mjög ásættanlegt og margur hefur gert verri kaup en að kaupa þessa skó. Ég var þó smá tíma að venjast smellunum og er það er eitthvað sem ég get almennt kvartað yfir, að þá eru það smellurnar sem mér finnst of litlar og ekki auðvelt að mynda átak á þeim ef þess þarf til að smella skónum. Innri sokkurinn er snilld og ættu allir skór að vera með þessum búnaði. Einnig þurfti ég að venjast því að fara úr skónum, en eftir nokkur skipti að þá er það komið í vana og situr innri sokkurinn ævinnlega eftir í skónum. Ef ég ætti að gefa þessum skóm frá einum og upp í fimm þar sem einn væri versta einkunn og fimm besta einkunn að þá myndi ég gefa þessum skóm 4,5 í einkunn. "Bottom line", mjög góðir skór og góður valkostur fyrir þá sem vilja úrvals skó í hjólamennskuna á ásættanlegu verði. Skórnir fást svartir eða hvítir á lit. Ég hef alltaf haldið meira upp á hvíta skó.
Söluaðili á þessum skóm er Nítró en jafnframt er hægt að nálgast upplýsingar um þá á fésbókarsíðu innflytjandans, sjá slóð: https://www.facebook.com/profile.php?id=100002336046571
