Við hér á heimilinu erum óðum að detta í vetrargírinn þó svo að sumir kunni að telja það fullsnemmt á suðvesturhorninu, en við erum bara afskaplega mikið fyrir brautina í Þorlákshöfn og finnst fátt skemmtilegra en að hjóla þar. Veðrið var með allra besta móti og brautin var í fínu standi fyrir utan þrjá stóra polla, en það hafði samt engin áhrif á þá ánægju að hjóla í þessari stórskemmtilegu braut. Eitthvað finnst okkur hjónum vera lítið um að vera hjá hjólamönnum sem ættu að nýta þessa daga sem eru góðir til að hjóla minnugir þess að fyrstu þrír mánuðir þessa árs voru með þeim lélegustu sem við höfum upplifað lengi hvað hjólamennsku varðar þar sem það var einfaldlega aldrei veður til þess. Eitthvað var af fólki í Bolaöldu þegar við renndum þar framhjá og sjálfsagt hafa einhverjir haldið í MotoMos líka sem er enn opin. Hvað Þorlákshöfn varðar að þá vorum við nánast ein þar fyrir utan Hauk, Teddu og Atla. Nú verður maður að nýta þessar helgar sem gefast og stefnan er sett á það hér á þessum bæ. Ég veit um einn mann sem var mjög sáttur við brautina í Þorlákshöfn í dag og var það Óliver Örn.