Saturday, 08 October 2011 02:25

James Stewart verður annað hvort á Suzuki eða Yamaha

Written by 

James Stewart er að verða stærsta ráðgátan fyrir komandi tímabil í AMA Supercrossi.  Hann á að heita að vera samningsbundinn L&M en eftir að það fór allt í loft upp um miðjan síðasta vetur og Larry Brooks labbaði út, að þá virðist það lið hreinlega vera í dauðateygunum.  Liðið hefur ekki haldið æfingu og fullt af starfsfólki L&M eru hættir og sumir meira að segja komnir í vinnu hjá nýja liði Larry Brooks og Jeremy McGrath.  James Stewart er víst búinn að vera að prófa Suzuki en jafnframt hefur hann haldið áfram tilraunum með Yamaha hjólið.  Honda virðist ekki vera inn í myndinni og eftir því sem miðlar tala um úti að þá snúist þetta nú um hvað Suzuki eða Yamaha eru tilbúinn að gera.  Sumir segja að farið hefði fé betra og það ætti bara að láta hann róa en það skiptir ekki máli hvort þú ert hrifinn af honum sem ökumanni eða ekki, að þá myndast alltaf ákveðinn spenna í loftinu þegar James Stewart er annars vegar á mótorhjóli og hvað þá ef Chad Reed er einnig nálægt.  Ef hann verður á Yamaha, að þá eru miklar líkur á því að hann gangi til liðs við JGR.  Ef hann fer á Suzuki, að þá veit ég ekki hvaða lið það á að vera því það er nánast búið að leysa upp Rockstar Makita Suzuki liðið og mjög líklega eru þeir að taka þann pakka sem Yamaha gerði fyrir um þremur árum síðan þegar þeir leystu upp "factory" lið sitt og ákváðu að leggja árherslu á stuðning við lið sem kepptu á Yamaha og hætta að vera í samkeppni við þau.  Að mörgu leyti skynsamlegt en jafnframt ákveðin eftirsjá.  

Að sögn þeirra sem þekkja til í bransanum þarna vestra, að þá skilst mér að James Stewart muni að öllum líkindum taka ákvörðun fyrir lok næstu viku og stefnan sé þá sett á Monster Energy Cup.  Þar mun hann þurfa að eiga við núverandi supercross meistara, Ryan Villpoto, sem var eiginlega neyddur til þátttöku af hálfu Kawasaki og Monster Energy sem er helsti styrktaraðili Kawasaki, en Ryan Villpoto var víst að fara að gifta sig sem var sett á "hold" af þessum sökum.  Spurning með hvaða hugarfari pilturinn fari með í þessa keppni í ljósi forsögu málsins þar sem hann ætlaði sér að vera í brúðkaupsferð á sama tíma og keppnin á að fara fram.  Hér er svo flott myndband af James Stewart sem manni leiðist víst seint á að horfa á því hann er magnaður á hjóli.  Skpitir engu þó ég hafi sett það á síðuna áður, þetta er helflott myndband.

 

Read 422 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:47