Hann Christophe Pourcel sem nýlega skrifaði undir samning við CLS Kawasaki þar sem hann mun keppa í MX1 við hlið bróður síns, Sebastian, fékk heldur betur að kynnast því í gær hvernig það er að lenda í því að keðjan slitnar í stökki. Ekki veit ég hvort hann slasaðist illa eða ekki en eitt er víst að þetta hefur ekki verið þægilegt, en Hilmar benti mér á þessa klippu. Christophe Pourcel var að undirbúa sig fyrir Bercy Supercrossið sem fer fram í París í desember að mig minnir. Dæmi hver fyrir sig en ég tel að þetta hafi verið vont.