Loksins má sjá almennilegt myndband af Ryan Dungey á KTM hjólinu og það í góðum gæðum. Held að þetta sé besti ökumaður sem KTM hefur náð í fyrir AMA tímabilið í langan tíma og er ég þá ekki að gera lítið úr Jeremy McGrath og Grant Langston sem kepptu eitt tímabil fyrir KTM á sínum tíma en með litlum árangri. Stóra spurninginn verður hver mun keyra við hlið hans á komandi tímabili en það verður að vera ökumaður sem er ekki mjög ólíkur Ryan Dungey því sá ökumaður mun hjálpa til við reynsluakstur og stillingar fyrir Ryan Dungey sem verður án efa aðalnúmerið hjá KTM í henni Ameríku.