Nokkur afar léleg myndbönd hafa birst á netinu í dag frá því þegar Ryan Dungey var að keyra í æfingabraut þeirra KTM manna. Hér er loksins myndband í góðum gæðum sem tekið var í pitt KTM en því miður fyrir okkur sem vildu sjá hann hjóla, að þá verður það ekki í þetta skiptið. Sjálfsagt eiga eftir að koma fleiri myndbönd á morgun eða hinn með hann hjólandi í brautinni en það er áhugavert að sjá hvernig reynt er að skapa þægilega umgjörð í kringum hann og Roger DeCoster er allt í öllu þarna.