Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á þá miklu aksturs og afþreyingarkeppni "Mývatn 2008". En þarna á að keppa samhliða í íscrossi og snjócrossi og ljóst að þetta verður mikið augnakonfekt fyrir þá sem hafa áhuga og fyrir þá sem vilja kynnast þessu frábæra sporti. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti í dag og eftir það hækkar gjaldið við þátttöku verulega. Þannig að þeir sem hafa áhuga, að endilega skella sér norður og upplifa frábærar gestrisni að hætti norðanmanna. Hægt er, ef ekki er orðið upppantaða, að fá gistingu á Hótel Reynihlíð.
Föstudagur 7. mars.
Kl. 14:00 Samhliða brautarkeppni á vélsleðum.
Kl. 16:30 Hillcross á vélsleðum.
Kl. 18:00 Jarðböðin við Mývatn bjóða keppendum í bað.
Kl. 21:00 Setning Mývatn 2008 við Sel-Hótel Mývatn.
Kl. 21:00 Keppendur kynntir.
Kl. 21:30 Barkvöld með lifandi tónlist – tilvalið að koma sér í gírinn.
Laugardagur 8. mars
Kl. 8:00 Mæting og skoðun mótorhjóla fyrir íscross.
Kl. 9:00 Timataka fyrir íscross hefst.
Kl. 9:40 Íscross á mótorhjólum 1. móto.
Kl. 10:20 Íscross á mótorhjólum 2. móto.
Kl. 11:00 Íscross á mótorhjólum 3. móto.
Kl. 12:00 Mæting og skoðun vélsleða fyrir snocross.
Kl. 13:00 Tímataka fyrir snocross hefst.
Kl. 14:00 Snocross keppni hefst.
Kl. 17:30 Ísspyrna á snjósleðum.
Kl. 20:00 Fordrykkur og vídosýning af afrekum dagsins.
Kl. 21:00 Veisla kvöldsins hefst í Skjólbrekku.
Kl. 21:30 Verðlaunaafhending fyrir afrek helgarinnar.
Kl. 23:00 Dansleikur með hljómsveitinni Von.
Hillcross.
Keppt er í einum flokki þar sem allar vélastærðir eru leyfðar. Valin er brött brekka ca 300m löng (fer eftir aðstæðum hverju sinni). Þrír keppendur ræstir í einu og ekið upp brekkuna sem er með stöllum af bestu gerð. Sá sem kemur fyrstur upp kemst áfram í næstu umferð. Keppnishaldarar áskilja sér allan rétt til að móta reglur að aðstæðum hverju sinni.
Ískross á mótorhjólum.
Ekinn er braut á Mývatni sem er um 2 km löng, keppt er í tveimur flokkum standardflokki og kvennaflokki. Byrjað er á tímatöku og síðan eru ekin 3 móto í hverjum flokki, hvert þeirra tekur um 15 mínútur.
Hér er hægt að ná í keppnisreglur fyrir ísakstur.
Samhliða brautarkeppni – þessi gamla góða.
Brautin er um 400-600 m löng og er tvöföld, innri og ytri hringur með hliðum sem þarf að fara í gegnum, gefin eru refsistig (5 sekúndur) fyrir að fella hlið. Allir fara í gegnum tímatöku og 8 bestu tímar komast í úrslit. Úrslitin er útsláttur sem endar með einum sigurvegara. Keppt er í tveimur flokkum opinn flokkur og heldri manna flokkur +35 ára.
Ísspyrna.
Brautin er 201 metrar og er á glærum ís. Keppt er í einum flokki opinn flokkur snjósleða og er flest leyft. Fyrst er tímataka til að fá uppröðun og svo einfaldur útsláttur.
Snocross.
1. Keppni er samansett úr 3 hítum.
2. Riðlar eru ca 12 – 15 mín.
3. Stigagjöf í öllum riðlum er 25,22,20,18,16,15,14,13 o.s.frv.
4. Braut skal ekki vera styttri en 600m meira ef hægt er.
5. Breidd brautar skal vera um 8,5m (lágmark 2 troðarabreiddir).
6. Örygggisbúnaður: Sami skyldubúnaður í brynju og hnéspelkum í öllum flokkum, einnig er skylda að hafa hálskraga undir hjálmi í öllum flokkum.
7. Meistaraflokkur: 600cc (opinn flokkur) Allar helstu breytingar leyfðar, vél, kúplingar, púst, racing fuel. Undanþága 1: eldri sleðar en 2006 og allt að 800cc leyfðir m/racing fuel
8. Sportflokkur opinn: 600cc (opinn flokkur), ) Allar helstu breytingar leyfðar, vél, kúplingar, púst, racing fuel. Undanþága 1: 2007 Racing 440cc og eldri sleðar en 2006 og eldri allt að 800cc leyfðir m/racing fuel.
9. Unglingaflokkur: 600cc (standard flokkur), dælubensín engar breytingar leyfðar nema á kúpl drif og blöndungum (-100okt). Naglar ekki leyfðir. Undanþága 1: 2007 Racing 440cc og eldir leyfðir m/racing fuel
Textinn er fengin af láni hjá þeim norðanmönnum