Tuesday, 04 October 2011 11:18

Mike Fisher liðstjóri Monster Energy Kawasaki hættur...

Written by 

Rétt í þessu að þá var Kawasaki að staðfesta að Mike Fisher sé hættur störfum hjá Monster Energy Kawasaki sem er "factory" lið Kawasaki.  Koma þessar fréttir eins og þruma úr heiðskíru lofti því Mike Fisher náði að vinna bæði AMA Motocross og AMA Supercross titilinn í 450 flokknum með Ryan Villopoto í fararbroddi.  Þetta brotthvarf er mjög skyndilegt, það skyndilegt, að Kawasaki er ekki einu sinni ennþá tilbúið að senda frá sér opinbera tilkynningu um málið en hefur þó staðfest orðróminn sem hófst á Twitter í gær og kom fyrst fram hjá Chad Reed á Twitter síðu hans.  Nú eru lið á fullu í undirbúningu sínum fyrir komandi tímabil í AMA Supercrossinu sem hefst 6 janúar í Los Angeles.  Sem hluti af undirbúningi liða að þá hafa margir topp ökumenn ákveðið að taka þátt í Monster Energy Cup sem fer fram í Las Vegas um 15 október og eru 1$ milljón dollarar í verðlaun fyrir þann sem sigrar og hefur Ryan Villopoto meðal annars tilkynnt um þátttöku sína í þessari keppni, en það er ljóst að Mike Fisher verður ekki við hlið hans um helgina til skrafs og ráðgerðar.  

Stóra spurninginn sem brennur á vörum áhugamanna um sportið er hver tekur við starfi Mike Fisher og hvert mun hann fara, þ.e. í hvaða lið?  Hér má sjá brautina sem menn koma til með að keppa á í Monster Energy Cup.

 

Read 412 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:49