Það eru ekki blankheit hjá KTM þessa dagana. Ekki nóg með að þeir séu búnir að ná til sín Ryan Dungey fyrir næstu tvö árin, þ.e. 2012 og 2013, heldur eru lið þeim tengt að næla í hvern topp ökumanninn á fætur öðru. Kevin Strijbos er nýbúinn að gera samning við HM Plant Red Bull KTM UK og mun keppa fyrir þá í MX1 á næsta ári. Það sem kemur mér á óvart er að hann hefur ákveðið að keppa á 350 hjólinu og virðist það ætla að vera lenskan í FIM að þeir fara á 350 hjólið þar á meðan ökumenn í AMA eru loksins farnir að taka aftur 450 hjólið frá þeim. Þetta er ekki allt því í dag var tilkynnt að bróðir James Stewart, Malcolm Stewart, sé gengin til liðs við JDR/J-Star/KTM og mun hann keppa á 250cc hjóli í lites flokknum fyrir þá í bæði í supercrossi og motocrossi. Og svona rétt til að klára þetta einvalalið sem nú þegar er hjá KTM eða hefur gengið til liðs við þá á síðustu vikum að þá eru þeir búnir að tryggja sér krafta Antoine Meo í WEC enduromótaröðinni fyrir árið 2012 en Antoine Meo varð WEC meistari í E2 flokknum í ár.
Já, maður eiginlega spyr sig hvar endar þetta og spurning hvort KTM hafi tekið upp slagorð Sykurmolana upp á sína arma sem var "heimsyfirráð eða dauði". Hvort sem sú er raunin að þá er það að verða ljóst að þetta er að verða illviðráðanlegt lið hvar sem á það er litið.