Töluverðar vangaveltur hafa verið um hvort að JGR (Joe Gibbs Racing) hafi verið að íhuga að skipta um hjólategund fyrir árið 2012 og hefur Suzuki verið nefnt til sögunnar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ekki skil ég nákvæmlega afhverju Suzuki hefur komið til tals því Suzuki er meira og minna búið að segja upp öllu starfsfólki sínu hvað keppnishald varðar í supercrossinu og motocrossi. Samtals sagði Rockstar Makita Suzuki upp þrjátíu manns. En víkjum þá sögunni aftur að JGR en þeir hafa staðfest að þeir verða áfram á Yamaha. Aðalstyrktaraðilar JGR hefur verið Toyota og Yamaha ásamt Muscle Milk og satt að segja er vandséð að sjá að Toyota hefði sætt sig við að Suzuki skyldi stíga inn í stað Yamaha þar sem samstarf Yamaha og Toyota er mjög mikið, það mikið að fyrir þá sem ekki þekkja að þá framleiðir Yamaha vélar í bifreiðar Toyota. Já, þú last það rétt. Yamaha er undirverktaki Toyota hvað þetta varðar. Þannig að ef JGR hefði ákveðið að hætta með Yamaha að þá hefði JGR líklega misst Toyota líka sem styrktaraðila og hver veit hvaða áhrif það myndi hafa á NASCAR lið JGR.
Einhverjar sögusagnir hafa verið að James Stewart sé ekki lengur samningsbundinn L&M og í raun hafi hann aldrei keypt liðið. Þannig að hann sé í raun frjálst að fara þangað sem hann vill fara. Nokkrir hafa nefnt að hann hafi verið í viðræðum við JGR og kjaftasögur á netinu hafa sagt að hann hafi verið að reyna að losna undan samningi við Yamaha í ljósi árangurs síns á þessu ári. Ef sú leið hjá honum hafi verið að ganga til liðs við JGR með von í brjósti að hann væri að fara á Suzuki, að þá verður það ekki raunin. Fólk talar um að þeim þykir James Stewart detta oftar en undanfarið, að þá ættu menn að horfa á 2006 tímabilið aftur. James Stewart er með mjög stífa framfjöðrun, stífari en flestir sem þýðir að þú verður að vera mjög nákvæmur í línuvali og hvað bremsutækni varðar. Ef ekki, að þá missir þú framhjólið undan þér og það hefur James Stewart gert oftar en nokkur annar ökumaður. Fall hans í A3 árið 2006 í fyrstu beygju er nákvæmlega eins og fall hans í fyrstu beygju í Daytona 2009 nema í það skiptið tók hann nokkra með sér niður.
Að lokum síðasta fréttin hvað JGR liðið varðar, að þá er ljóst að Davi Millsaps verður áfram hjá liðinu en Justin Brayton fékk samning hjá American Honda, sem er "factory" lið Honda og mun hann keppa við hlið Trey Canard.