Loksins, loksins er það orðið opinbert að Ryan Dungey er gengin til liðs við KTM í henni Ameríku og mun keppa á KTM 450 SX-F. Þar með er hið sigursæla tvíeyki með þeim Roger DeCoster og Ryan Dungey endurvakið og verður gaman að fylgjast með hvort þeim tekst að endurvekja neistann sem kviknaði á milli þeirra og gerði Ryan Dungey að tvöföldum meistara í AMA Supercrossi og motocrossi. Það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá KTM og ekki geta þeir kvartað yfir að vera ekki með góða ökumenn því þeir eru með að mínu mati með eina þá bestu í hverri stöðu, fyrir utan kannski Andrew Short sem er samt í topp tíu í henni Ameríku. Einnig er KTM með einn sigursælasta og goðsögn í eigin lífi sem liðstjóra og er ég þar að tala um hann Roger DeCoster sem í raun hefur mótað motocross á heimsvísu og verið einn stærsti áhrifavaldurinn í henni Ameríku hvað motocross varðar. Ég er mjög ánægður með að Ryan Dungey skuli hafa valið 450 hjólið þar sem ég hef ekki farið leynt með þá skoðun mína hér á þessari síðu að mér hefur þótt það afar undarleg ákvörðun hjá KTM að leggja alla áherslu á 350 hjólið á kostnað 450 hjólsins sem síðustu ár hefur verið afar ofarlega í vali á hjóli ársins síðustu þrjú ár og í mörgum tilfellum valið hjóla ársins á meðan 350 hjólið hefur fengið misjafna dóma þar sem þeir sem hafa keyrt það hafa ekki getað skilgreint í hvaða flokki það á eiginlega að vera.