Saturday, 01 October 2011 19:20

Innsýn í heim fjölskyldna og ökumanna í Ameríku og þar sem allt er lagt undir

Written by 

Hér er afar gott myndband sem sýnir inn í heim fjölskyldna og ungra ökumanna sem eru að reyna að "meika" það í henni Ameríku og skynjar maður það hreinlega hvað mikið liggur undir hjá þessu fólki.  Foreldrar vinna margar vinnur í því skyni að koma börnunum sínum áfram og öllu virðist vera tjaldað til en engin eftirsjá er að neinu hjá þessu fólki þó svo að sonur eða dóttir sé ekki á palli og fái kannski ekki samning þetta árið því það er alltaf næsta ár.  Það eitt að sjá þetta kallar hreinlega á það að maður verður að fara einu sinni á Loretta Lynn's keppni áður en maður er allur.  Hér er sýnt allt frá yngstu ökumönnum alveg til þeirra sem eru að berjast fyrir því að komast að hjá liðum fyrir næsta ár.  Persónulega gaman að sjá þessa yngstu og gleðina sem þessu fylgir hjá þeim og er hann algjör perla þessi fimm ára sem er yngsti keppandinn til þess að verða sigurvegari í sögu Loretta Lynn's.

 

Read 327 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:50