Shaun Simpson varð um helgina MX1 meistarinn í Belgíu og er hann fyrsti útlendingurinn í 19 ár sem tekst það. Shaun Simpson er mjög góður ökumaður sem hefur átt misjafna daga síðan hann meiddi sig fyrir um þremur árum síðan. Þetta var sá kandítat sem KTM hafði veðjað á að yrði næsti meistari í MX2 á eftir Tyle Rattray þegar hann fór til Ameríku. En þá brotnaði hann og það nokkuð illa og setti það verulegt bakslag í feril þessa annars geðþekka Skota. Hann missti samning sinn við KTM og fór til LS Honda þar sem hann hefur verið að sýna það að hann er óðum að komast í sitt fyrra form. Þannig að ná þessum titli í Belgíu hlýtur að skipta hann miklu máli. Shaun Simpson er á leið til Dixon Yamaha og vera fyrsti MX1 ökumaður þessa liðs í langan tíma. Jeffrey Herlings tók titilinn í MX2 í Belgíu.