Monday, 19 September 2011 15:27

Taddy Blazusiak enn ósigraður eftir fjórar umferðir í Geico AMA Endurocrossi

Written by 

Já, þessi piltur er hreint út sagt ótrúlegur en um helgina fór fram fjórða umferðinni í Geico AMA Endurocross og fór keppnin fram í Ontario í Kanada.  Það er skemmst frá því að segja að Taddy Blazusiak sigraði og hefur hann því sigrað í öllum umferðum það sem af er.  Hreint út sagt magnaður þessi piltur.  Ég vona að það verði haldin mótaröð í endurocrossi á Íslandi, eins og reynt var síðasta vetur, því mér finnst þetta keppnisform mjög áhorfendavænt og skemmtilegt til áhorfs.  Satt að segja veit ég ekki hvernig staðan er á því og virtist sem áhugi keppenda og áhorfenda hafi verið farin að dala þegar síðasta keppnin fór fram í vetur.

Expert Main Event Results
1. Taddy Blazusiak
2. Colton Haaker
3. Cody Webb
4. Kyle Redmond
5. Geoff Aaron
6. Justin Soule 
7. Gary Sutherlin
8. Mike Brown
9. Keith Sweeten
10. Destry Abbott
11. Rory Sullivan

Read 338 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:51