Þessi grein er lauslega þýdd úr Motocross Action Magazine og eins og áður eru það viðhorf þeirra sem koma hér fram.
Einhvern tíman í framtíðinni mun renna upp sá dagur að framleiðendur, keppnishaldarar, ökumenn og AMA reglugerðapésar munu harma þann dag þegar þeir samþykktu að leyfa 250cc fjórgengishjólum að keppa á móti 125cc tvígengishjólum. Við munum sakna 125 tvígengishjólana þegar þau hætta í framleiðslu og þar sem þú, lesandi, ert sjálfsagt af sama sauðhúsi og hinir, að þá eru líkurnar á að þú kaupir þér 125cc tvígengishjól afar litlar.
Nú heldur þú sjálfsagt að við séum of dramatískir, en ef þú spáir virkilega í það, að þá er ekki að ástæðulausu að við viljum halda í 125cc tvígengishjólin. En ástæðurnar eru:
1. Kostnaðurinn við að eiga og viðhalda tvígengishjóli er mun minni en fjórgengishjóli
2. Þyngdin er undantekingarlaust undir 100 kg. og því eru viðbrögðin fyrir einstaklinga sem fara upp af 85cc ekki eins mikil og eðilegri heldur en þegar þeir fara yfir á tæplega 110 kg. fjórgengishjólið. Fyrir utan að vera mun viðráðanlegra.
3. Nýliðun - Það er langt frá því að allir vilji eða þurfi þessi flóknu, þunga og dýru fjórgengishjól. Við brotthvarf 125cc tvígengishjólana að þá eru aukast líkurnar að fjárhagsleg hindrun letji fólk við að byrja í sportinu.
4. Reglur - Hvað sem AMA gerir á næstu árum til að reyna að viðhalda tvígengishjólum í keppni, að þá geta þeir aldrei tekið til baka þann skaða sem þeir hafa nú þegar valdið.
Til allra lukku að þá eru framleiðendur eins og Yamaha og KTM að berjast gegn brotthvarfi tvígengishjóla með því að þróa þau áfram og halda áfram að framleiða þau. En æ fleiri framleiðendur hafa gefið framleiðslu slíkra hjóla upp á bátinn.
Hverju hefur verið breytt fyrir árið 2008?
1. Frambremsurnar eru 220 gr. léttari en á síðustu árgerð
2. "The wave-style brake rotors" sem er 140 gr. léttari.
3. Túburnar í framgöflunum eru léttari, eða sem nemur 200 gr.
4. Gormarnir í framgöflunum hefur verið breytt í 0,42 kg/mm úr 0,41 kg/mm og gaflarnir eru 4 mm lægri
5. Allt í kringum gaflana hefur verið létt og kemur þetta beint af YZ250F
6. Breyting á bili á ventlinum eykur eldsneytisnýtingu
7. Keðjusleðinn (chain guide) kemur beint frá YZ250F
8. Stimplinum hefur verið breytt þannig að hann er 1,48 mm minni en eldri útgáfan sem gefur meira afl.
2008 árgerðin af YZ125 er ekki hraðari en 2007 árgerðin en greinarhöfundar halda ekki vatni yfir sjálfu hjólinu. Þetta hjól er eins fullkomið, að þeirra mati, eins og hjól getur nokkurn tíman orðið. Getur þetta hjól unnið fjórgengishjólin? Svo framarlega sem ekki er um langan startkafla, miklar hæðir eða mikið af litlum "vúpsum", að þá telja greinarhöfundur að þeir gætu unnið fjórgengishjólin á þessu hjóli.
Hvað gera 125cc tvígengishjólin þá betur en fjórgengishjólin?
1. Krakkinn þinn getur lyft því upp sjálfur þar sem það er eins og fjöður í samanborið við fjórgengishjólin
2. Þú getur endurbyggt hjólið 4 sinnum á móti 1 sinni í fjórgengishjóli fyrir sama pening (4:1)
3. Léttur framendin og snörp 125cc tvígengisvélin leyfir þér að tipla nétt á stórum "vúpsum", því stærri sem "vúpsarnir" eru, því betra fyrir tvígengishjólin.
4. "Steep jumps" eru eðal fyrir létt og auðmeðhöndluð tvígengishjól
5. Þú hefur ekki lifað lífinu nema að þú hafir náð að keyra á útopnu á 125cc. Þegar þú keyrir hjólið rétt að þá jafnast ekkert á við hátt snúningssvið og léttleikan
Með hverju mæla þeir í breytingum
Áður en þú kaupir þér nýja pípu eða átt eitthvað við sjálfa vélina, að þá mæla greinarhöfundar með að þú skiptir um afturtannhjól og bætir sem nemur einni tönn í afturtannhjólið. Við það færðu meira líf í annan gírinn fyrir utan að þú kemst í þriðja gírinn fyrr, fyrir utan að gera hlutfallið á milli alla gírana þægilegri í notkun. Greinarhöfundar mæla tvímælalaust með því að bora hjólið út og benda á að hægt sé að búa til geðveika græju við það að eitt að setja á hjólið 139cc kit eða 151cc kit. Einnig er hægt að fá 167cc kit. Við að nota 151cc kit að þá nærðu hugsanlega 6 auka hestöflum út úr vélinni. En samkvæmt AMA "Amateur" reglum að þá eru útboranir á 125cc hjólum leyfileg keppnum á móti 250cc (í Bandaríkjunum). Ég veit ekki hvernig reglurnar eru hér, en tel að þetta sé bannað í 125cc flokknum hér heima, nema í opnum flokkum
Hvað fjörðunina varðar að þá eru KYB demparnir þeir allra bestu að mati greinarhöfunda og ætti að gefa hönnunarliðinu klapp fyrir frábæra vinnu.
Hvað var það svo sem stóð upp úr hjá þeim við prófunina?
1. Þyngdin á hjólin og þyngdarhlutfallið er frábært.
2. Þeir hreinlega elska Yamaha SSS KYB demparana, "best in the business"
3. Stýrið, hver getur kvartað yfir ProTaper stýri
4. Grindin, þeir vildu óska á Yamaha myndi gera það sama við fjórgengishjólin sín eins og þeir hafa gert við grindina á þessu hjóli. Þetta geri hjólið miklu flottara.
Hver var svo endanleg niðurstaða?
Þetta er eitt besta 125cc motorcrosshjól sem byggt hefur verið að mati greinarhöfunda. Í framtíðinni mun YZ125 árgerð 2008 fara á sama stall hvað antík varðar eins og Beta, Walkman, Atari og ritvélar og þess á eftir að verða minnst í sögunni sem eitt allra besta hjól sem byggt hefur verið.
Svo mörg voru þau orð og greinilegt að þeir hjá Motorcross Action Magazine, sem kalla nú ekki allt ömmu sína, eru yfir sig hrifnir af þessu hjóli. Heimilisfólkið hér á bæ á þrjú slík hjól og eru þetta hreint út sagt frábært hjól að okkar mati.