Það er nú ekki seinna vænna fyrir þessa aðila en að skella sér í æfingabúðir til Lommels í Belgíu. Sérstaklega þar sem tímabilið er búið á Íslandi en við erum ekkert að segja þeim það, er það
En þetta er hluti af undirbúningi Eyþórs Reynis fyrir MXON og fylgdu Guðni, Eysteinn og að sjálfsögðu Reynir með og fyrir einhverja sakir sýnist mér sem þetta sé farið að snúast upp í "hardcore" æfingabúðir fyrir þá eldri í Lommel og Eyþór sé hreinlega í barnapíu hlutverki. Eysteinn og Guðni tóku sig til og tóku þátt í keppni og gerði Guðni sér lítið fyrir og var með holuskotið en ákvað svo að búa til hraðahindrun fyrir hina keppendurna svo Eysteinn ætti einhvern séns en það versta við það er að hann hafði ekki hugsað þetta alla leið því hann hafði ekkert úr að moða nema sjálfan sig og hjólið sem hann að sjálfsögðu fórnaði fyrir liðsandann. Sést þessi stórkostlega fórnfýsi í kringum fjórðu mínútu á myndbandinu og heppnast þessi tilraun hans með þvílíkum ágætum að Eysteinn nær alla leið upp í fimmta sæti. Já, hann Guðni er sko "með'etta" ![]()