Wednesday, 14 September 2011 00:22

Sýnt beint frá MXON um helgina á sportbarnum "'Úrilla Górillan"

Written by 

Þar sem allir hafa ekki tækifæri á því að kaupa sér áskrift á netinu eða eru ekki með Motors TV í gegnum afruglara eða vilt einfaldlega koma saman í góðra vina hópi þar sem hægt verður að kaupa sér góðar veitingar á hóflegu verði, að þá ætlar sportbarinn "Úrilla Górillan" að sýna beint frá Motocross of Nations eða MXON sem fer fram í Frakklandi.  Útsending hefst kl.10 að íslenskum tíma og er um að gera fyrir þá sem vilja upplifa stemmingu með að mæta á "Úrillu Górilluna" þar sem sýnt verður frá æfingum og undanriðlum á laugardaginn ásamt viðtöl við ökumenn og liðstjóri.  Á Sunnudaginn hefst útsending líka kl.10 að íslenskum tíma og er þetta eina tækifærið sem við höfum til að sjá íslensku strákana keppa í MXON, fyrir utan tímatöku og undanriðla á laugardaginn, því ég á von á því að þeir muni lenda í B-flokknum, en það á að sýna frá B-keppninni í fyrsta sinn í ár.  Er sportbarinn að prófa að sýna frá svona viðburðum og ef mæting verður góð, að þá er aldrei að vita nema að þeir komi til með að gera þetta að reglulegum viðburði hjá sér og muni koma til með að sýna frá FIM og AMA mótaröðinni.  Þannig um að gera að mæta á "Úrillu Górilluna" um helgina og horfa á strákana okkar keppa í Frakkalandi og njóta góðra veitinga á meðan sem verða á sértilboði af þessum sökum.  Fyrir þá sem ekki vita að þá er sportabarinn "Úrilla Górillan" á Stórhöfða 17.  Hér má sjá hluta af aðstöðunni sem er í boði fyrir okkur.

Read 548 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:20