Eins og það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum að þá eru margir ábúendur í Þykkvabæ orðnir langþreyttir á virðingarleysi hluta hjólamanna gagnvart eignum þeirra og umgengni á svæðinu. Mæli ég, að ég held, fyrir munn flestra hjólamanna er ég bið menn um að sýna almenna kurteisi á svæðinu og virða óskir þeirra, enda eignaland um að ræða. Ástandið hefur versnað mikið vegna mikillar fjöglunnar á svæðinu af hjólafólki og er sjálfsagt sínu verra þar sem hjólafólk hefur ekki getað notað brautina í Þorlákshöfn nema að mjög litlu leyti í vetur vegna snjóalaga. Þykkvibær er öllu jafna sá staður sem notaður er yfir háveturinn, þ.e. frá nóvember út mars eða apríl, og hefur verið neyðarúrræði sumra hjólamanna hvað aðstöðu varðar. Fer eftir hvort að vetur konungur sé farin að gefa eitthvað eftir. Þessi vetur hefur verið óvenju snjó mikill miðað við síðustu ár hér á suðvesturhorninu sem sýnir sig hvað best að í fyrsta sinn í mörg herrans ár var haldin snjócrosskeppni í Bolöldu í vetur. En hver er hinn raunverulega staða brauta í dag og hvernig er ástand þeirra?
Þeir í Þorlákshöfn hafa rembst eins og rjúpan við staurinn að halda brautinni opinni, en snjórinn hefur gert þeim erfitt fyrir og hitastigið ekki verið þeim í hag. En Þorlákshöfn er samt á því stigi í dag að hægt er að hjóla stærsta hluta hennar. Þeir sem standa að brautinni eru líka duglegir að upplýsa um ástand hennar á motocross.is eða nánar tiltekið á spjallvefnum. Þannig að brautin í Þorlákshöfn er opin og hægt er að kaupa miða í brautina í skála N1. Aðstandendur brautarinnar hafa tekið tillit til aðstaðna og lækkað brautarverðið í samræmi við ástand brautarinnar og notkunar möguleika. Þannig að nú er um að gera að hvíla Þykkvabæinn og fara í brautina í Þorlákshöfn sem er virkilega góð æfing.
Sólbrekka er öll að koma til og mér skilst að JóiKef hafi hjólað í henni í gær. Hann taldi brautina í lagi, en erfiða vegna skorts á viðhaldi og vart fær fyrir byrjendur. Hún er gróf og sums staðar standa klappir upp úr brautinni, en hún er notkunarhæf. JóiKef stefnir á það að fara að vinna við brautina og verður gaman að fá hana í gagnið. Bæta þarf í hana jarðveg og hugmynd hefur komið að setja í kafla brautarinnar sand. M.ö.o. hægt er að hjóla í brautinni, en hún er erfið og slitin.
Stóra brautin í Bolöldu er ennþá á kafi í snjó, en sum staðar er farið að glitta í sjálfa brautina. Spurninginn er hvort að það myndi flýta fyrir að koma henni í gagnið með því að ryðja eins miklu úr henni og hægt er. Barnabrautin er komin í gagnið og er hægt að fara með yngstu hjólameðlimina þangað. En hún er í ágætis standi. Enduroslóðarnir eru meira og minna á kafi í snjó. Ég veit þó að vinna mun fara að hefjast á svæðinu á næstunni.
Vestmanneyjar. Hægt er að fara með Herjólfi til Vestmannaeyja og er brautin að margra mati ein sú skemmtilegasta á landinu en erfið. Hluti Team Kawasaki og Team Yamaha fóru til Vestmannaeyja um helgina og ættu frekari fréttir af ástandi brautarinnar að berast þegar þeir hafa skilað sér upp á meginlandið. Ef um hóp er að ræða, að þá er lítið mál að hafa samband við aðstandendur brautarinnar og þeir gera hana klára.
Ég hef engar fréttir af Akranesi, né heldur af brautinni í Ólafsvík en miðað hæð brautar og nálægð við sjávarmálið ætti að leiða til þess að þessi braut sé fær. En brautinni hefur lítið sem ekkert verið haldið við síðan eftir Íslandsmeistaramótið í júní í fyrra. Gaman væri að fá fregnir af brautinni á Akranesi. Ég geri ráð fyrir að allt sé á kafi fyrir norðan á Akureyri þar sem þar snjóar ennþá.