Kári Jónsson tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í ECC1 þriðja árið í röð og undirstrikar það enn og aftur að hann er einn okkar allra besti ökumaður í enduro. Kári lauk keppni með fullu húsi stiga sem er frábær árangur. En það var ekki bara Kári sem náði sér í titil í gær því Eyþór Reynisson náði sér í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í enduro eða í ECC2 flokk. Þetta er fyrsta árið sem Eyþór keppir fulla seríu í enduro og er árangur hans því eftirtektarverður fyrir þær sakir. Er þetta þriðji titil Eyþórs í ár. Guðbjartur Magnússon varð sigurvegari í B-flokknum, Signý Stefánsdóttir í kvennaflokknum en hér fyrir neðan má sjá röðina eins og hún var eftir tímabilið.
Íslandsmeistarar árið 2011 í Endúró eftir flokkum:
- ECC-1 : Kári Jónsson
- ECC-2 : Eyþór Reynisson
- Tvímenningur: Gunnar Sölvason og Atli Már Guðnason
- B flokkur: Guðbjartur Magnússon
- B40+ : Magnús Guðbjartur Helgason
- Kvennaflokkur: Signý Stefánsdóttir
Það eru engar myndir frá mér úr þessari umferð því ég var á gæsaskytterí þessa sömu helgi en ég fékk leyfi til að nota myndir frá Halldóri Björnsyni eða Dóra Bjöss eins og hann vill kalla sig og þakka ég honum fyrir lánið.