Wednesday, 31 August 2011 00:30

Tæplega sjötíu keppendur skráðir í síðustu ECC umferðina um næstu helgi

Written by 

Um næstu helgi fer fram síðustu umferðirnar í ECC til Íslandsmeistara og verður að segjast að þátttakan er langt undir því sem eðlilegt getur talist.  Tæplega sjötíu keppendur hafa skráð sig til leiks í braut sem þátttakendur frá umferðinni sem fór þar fram árið 2008 hafa kallað eina þá allra skemmtilegust sem þeir tóku þátt í það árið.  Ekki er það fjarlægðin sem á að fæla frá því þetta er rétt um þrír tímar að skutlast á Krókinn.  Alla vega finnst mér þetta ekki vera mikil vegalengd þegar maður hefur verið að skutlast á Mývatn yfir hávetur.  Þetta verður því að teljast mikil vonbrigði fyrir keppnishaldara og MSÍ.  Ég á samt von á því að þeir keppendur sem hafa skráð sig og mæta til leiks, eigi eftir að skemmta sér með besta móti og ég á ekki von á öðru en að klúbburinn á Króknum standi eins vel að þessari keppni og þeim er unnt.  En það er alveg ljóst að mínu mati að MSÍ þarf að leggja höfuðið í bleyti hvað varðar framtíðina í enduro því þær leiðir sem hafa verið reyndar síðustu tvö ár til að fjölga í þeirri keppnisgrein hafa ekki skilað viðeigandi árangri þó svo að spurningin liggi í loftinu hvort enn meiri fækkun hefði orðið ef MSÍ hefði ekki gripið til þessara aðgerða sem þó er búið að koma í framkvæmd.  Hægt er að sjá keppendalistann með að smella hér.

Read 536 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:23