Þetta myndband er sett hér fyrir hann Daða vin minn og Gulla í Sonax, en þetta sýnir frá fjögurra daga endurokeppni sem fór fram í Ástralíu þar sem búið var að aðlaga Yamaha YZ450F hjól að endurostöðlum. Það er ekki annað að sjá en það hafi staðist allt sem það átti að gera og gott betur. Þetta er stærsta endurokeppni í Ástralíu og með öllum bestu ökumönnum landsins. Margir hafa spurt sig hvort það sé þess virði að taka motocrosshjól og aðlaga að enduro og Adam Riemann er ekki í nokkrum vafa um að það marg borgi sig. Dæmi hver fyrir sig en þetta er áhugavert. Spurning hvort að svona breyting eins og þeir gera gæfi möguleika á götuskráningu á svona hjóli?