Í dag lauk ISDE í Finnlandi en Íslendingar áttu í fyrsta sinn lið í sögu þessarar einna erfiðustu liðakeppni hvers ár. Keppnin var í fyrra fallinu í ár og stafar það af því að það vetrar snemma á þeim slóðum sem keppnin var haldinn og fyrir vikið, að þá þurfti að færa dagsetninguna til svo það yrði hægt að hafa keppnina á þessu svæði. Keppendur að þessu sinni voru þeir Haukur Þorsteinsson, Jónas Stefánsson, Árni Gunnarsson, Daði Erlingsson, Stefán Gunnarsson og Kári Jónsson. Með þeim í för voru nokkrir góðir velunnarar sportsins á Íslandi sem voru þarna á eigin vegum til að styðja og hjálpa til eftir þörfum. Skemmst er frá því að segja að þrír Íslendingar náðu að ljúka keppni en keppnin stendur yfir í sex erfiða keppnisdaga. Það voru þeir Árni Gunnarsson og feðgarnir Jónas Stefánsson og Stefán Gunnarsson. Hinir þrír, Haukur Þorsteinsson, Daði Erlingsson og Kári Jónsson urðu að hætta keppni vegna bilana sem gátu verið frá því að felgurnar eyðilögðust og allt að því að mótorarnir brotnaðu. En ökumenn máttu ekki skipta um hjól og var takmarkað hvað mátti gera við hvert hjól í keppninni, en mig minnir að þeir hafa eingöngu haft um 15 mínútur til að gera við hjól í pitt þegar þeir komu inn á sérleiðunum og urðu ökumenn að gera við sjálfir, þ.e. máttu ekki þiggja utanaðkomandi aðstoð. Vona að ég sé að fara með þetta rétt. Ég óska Íslendingum til hamingju með árungurinn í þessari erfiðu keppni og eftir því sem ég best veit, að þá lenti Jónast Stefánsson í 30 sæti í E1, Stefán Gunnarsson lenti í 23 sæti í E3 og Árni Gunnarsson lenti í 55 sæti í E2. Er það glæsilegt eitt og sér að hafa lokið þessu móti. Frábært strákar og hlakka til að heyra sögur. Þetta fer í reynslubankann.
Þorri hefur verið að setja flotta pistla inn á motocross.is og ættu allir áhugamenn um enduro að lesa þá en hér fyrir neðan eru myndbönd sem ég fann af keppninni. Ekki er komið fram myndband af síðasta keppnisdeginum, þ.e. í dag og mun ég henda því hér inn um leið og ég sé það á YouTube.