Sunday, 07 August 2011 23:25

Landslið Íslands á ISDE 2011 í Finnlandi

Written by 

Fyrir þá sem vilja fylgjast með strákunum sem eru að keppa í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd í ISDE keppninni, að þá eru mjög góðir pistlar um ferðalag þeirra, undirbúning og væntanlega keppni á vef motocross.is og eru þeir skrifaðir, að ég held, af Jonna.  Því miður eru engir linkar á "live stream" frá keppninni en ég á von á að það verði hægt að sjá úrdrátt úr keppninni þegar fram í sækir á stöðinni Motors TV.  Hér má sjá kynningarmyndband frá keppninni og því landsvæði sem þeir dvelja á akkúrat núna ásamt myndbandi um skoðunina á hjólinu þar sem keppandi frá USA, Destrey Abbott talar um keppnina.  Síðasta myndbandi er viðtal við Jeffrey Freddette sem keppir einnig fyrir lið USA.  Óska svo strákunum alls hins besta og í versta falli, reynið að hafa gaman af þessu.

Read 452 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:16