Thursday, 04 August 2011 00:41

Íslendingar að taka þátt í ISDE í fyrsta sinn

Written by 

Um næstu helgi hefst MXON í enduro eða það sem er kallað af FIM ISDE eða International Six Days Enduro.  Í fyrsta sinn sendum við Íslendingar fulltrúa í þessa keppni og verður gaman að sjá hvernig þeim gengur.  Þeir keppendur sem koma til með að keppa fyrir Íslands hönd eru þeir Kári Jónsson, Haukur Þorsteinsson, Árni Gunnarsson, Daði Erlingsson, Stefán Gunnarsson, Jónas Stefánsson.  Ég held að ég sé með nafnalistann réttann og bið ég menn um að leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál.  Hægt er að fylgjast með framgangi mála á heimasíðu ISDE 2011 og er hægt að fara á hana með að smella hér.  Því miður hef ég ekki ennþá fundið neina "live stream" linka á þessa keppni en mig minnir að Motors TV sýni þátt um þetta þegar keppninni er lokið.  Ég óska íslenskum keppendum góðs gengis í keppninni og bendi þeim á að nýkrýndur heimsmeistari í CrossFit, Annie Mist, hefur sýnt og sannað í verki að allt er hægt ef menn eru tilbúnir að leggja á sig þá vinnu sem þarf til að komast þangað sem þeir vilja.  "Good luck guys".

Read 669 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:16