Um helgina fór fram skemmtikeppni VÍK og Líklegs og var hún haldin til stuðnings Blóðbankanum. Um þrjátíu keppendur skráðu sig og tóku þátt í einni af skemmtilegustu keppni ársins að þeirra sögn við frábærar aðstæður. Var mjög gott veður og allt eins og best verður á kosið. Búist hafði verið við fleiri keppendum en líklegast stafar þátttakan af því að margir eru í sumarfríi með fjölskyldur sínar og hafa kosið að nýta þessa frí helgi í sportinu til að vera með sínum nánustu. Ég var einn og af þeim og eru því engar myndir af keppninni frá mér. Ýmsar uppákomur voru í gangi í þessari keppni eins og í fyrra og þótti mönnum oft skemmtilegra að fylgjast með því en að hjóla sjálfir. Keppnin fór fram með því sniði að tveir ökumenn voru dregnir saman í lið og var reynt að gera það þannig að einn góður var á móti einum ekki eins góðum. Er þetta ekki ósvipuð hugsun eins og í Texas Scramble í golfi og þykir vera mjög skemmtilegt keppnisform.
Sigurvegari dagsins urðu þeir Atli Már og Ólafur Einarsson en í öðru sæti varð Árni Gunnarsonn #100, en hann keyrði einn og var sem sagt járnkarl dagsins. Hér fyrir neðan má sjá nánari úrslit og einnig er myndband sem ég tók af netinu, en höfundur er Ágúst Björnsson og leyfi ég mér að birta það hér. Myndin með þessari frétt er líka fengin af láni hjá Ágústi og fengin af láni af facebook síðu hans.
| Sæti | Stig | Rásnr og nafn | T¡mi | Flokkur | Hjól |
| Eknir hringir: 11 | |||||
| 1 | 100 | 11-Olafur E og Atli Mar | 196:47.11 | 2 | |
| 2 | 85 | 16-Arni Gunnar og Keli | 198:46.79 +1:59.68 | 2 | |
| 3 | 75 | 12-Agust H og Goli | 202:16.28 +5:29.17 | 2 | |
| 4 | 67 | 1-Einar Bj og Siggi | 207:51.44 +11:04.33 | 1 | |
| 5 | 60 | 5-Skuli Geir og Gisli | 209:30.36 +12:43.25 | 2 | |
| Eknir hringir: 10 | |||||
| 6 | 54 | 8-Petur Sm og Orn Ingi | 199:24.25 | 2 | |
| 7 | 49 | 13-Oskar Sv og Oli Gisl | 200:03.96 +0:39.71 | 2 | |
| 8 | 45 | 6-Tedda og Bjorgvin | 200:32.20 +1:07.95 | 2 | |
| 9 | 42 | 9-Josef og Hrafn | 201:40.25 +2:16.00 | 2 | |
| 10 | 41 | 2-Bjarni og Arnar | 203:53.83 +4:29.58 | 1 | |
| 11 | 40 | 4-Simon og Viggo | 207:10.79 +7:46.54 | 2 | |
| 12 | 39 | 3-Ari og Kjarri | 209:41.12 +10:16.87 | 1 | |
| Eknir hringir: 9 | |||||
| 13 | 38 | 7-Borkur og Jens Dor | 197:07.10 | 2 | |
| 14 | 37 | 14-Dadi Sk og Maggy | 200:15.83 +3:08.73 | 2 | |
| 15 | 36 | 15-Charlie & Elliot | 201:13.55 +4:06.45 | 2 | |
| 16 | 35 | 10-Joi Kef og Bergur | 202:35.23 +5:28.13 | 2 | |