Friday, 15 July 2011 10:17

Áminning um skemmtikeppni VÍK og Herr Líklegs

Written by 

Vill minna menn á að enn er hægt að skrá sig í skemmtikeppni VÍK og Hjört Líklegs sem er til styrktar Blóðbankanum.  En nú fyrir tveim dögum síðan þurfti ökumaður bifhjóls að nota aðstoðar Blóðbankans eftir slys sem varð í Skagarfirði.  Þannig að þetta er sá banki sem skiptir öllu máli og í raun, sá eini sem við eigum að hugsa alvarlega um.  Líklegur er búinn að vera duglegur að sanka að sér verðlaunum sem verða í boði fyrir keppendur og hér á myndinni fyrir neðan má sjá hluta af því sem Líklegur er búinn að safna saman.  Einnig var Líklegur o.fl. að fara í gegnum slóðana í Bolaöldu í gær með nýja traktor VÍK þar sem eitt og annað var lagað til, þannig að enduro áhugamenn ættu ekki að verða sviknir af þessari keppni.  Hægt að skrá sig á vef VÍK, www.motocross.is og lýkur skráning í kvöld, að ég held. 

Þessi keppni var haldin í fyrsta sinn í fyrra til styrktar Líklegs þar sem hjóli hans var stolið.  Umgjörðin og öll keppnin í fyrra þótti takast með eindæmum vel að VÍK setti sig aftur í samband við Líklegan til að endurtaka leikinn en að þessu sinni átti að styrkja gott málefni og varð Blóðbankinn fyrir valinu.  Ég kom við í fyrra þar sem keppnin fór fram og skein gleðin í andlitinu á hverjum einasta keppanda og menn höfðu á orði að þetta væri ein sú allra skemmtilegsta keppni sem þeir hefðu tekið þátt í.

Read 606 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:13