Friday, 15 July 2011 09:56

Red Bull Romaniacs 2011 hefst á morgun

Written by 

Á morgun hefst ein erfiðasta endurokeppni sem fer fram í heiminum og heitir hún Red Bull Romaniacs og fer fram í Rúmeníu.  Þessi keppni flokkast sem hrein og klár "hardenduro" keppni og gerast þær ekki mikið erfiðari en þessi.  Hafa skipuleggjendur lagt á sig mikla vinnu til að gera þessi keppni erfiðari og erfiðari ár eftir ár án þess þó að missa skemmtanagildið sitt fyrir ökumenn sem og áhorfendur.  Chris Birch sigraði árið 2010 og að sjálfsögðu ætlar hann sér að endurtaka leikinn fyrir árið í ár.  Hér má sá stutt myndband af undirbúningi hans fyrir keppnina en hann er búinn að vera að keppa í Suður-Afríku þar sem hann vann fimm keppnir af sex sem hann tók þátt í. 

Við Íslendingar eigum fulltrúa í þessari keppni en það er enginn annar en Halldór Björnsson verður þarna en að þessu sinni sem starfsmaður.  Halldór tók þátt í þessari keppni árið 2007 og náði að klára þrjá og hálfan dag af fjórum og var því alveg við það að ljúka keppni.  Halldór mun vera með reglulega pistla um keppnina á vef VÍK, motocross.is og ættu allir sem áhuga hafa að fylgjast með skrifum hans þar.

Read 513 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:13