Á síðasta ári var haldin skemmtikeppni á aksturssvæðinu við Bolaöldur mér til stuðnings til að kaupa mér nýtt hjól eftir að hjólinu mínu hafði verið stolið og safnaðist ágætis upphæð handa mér sem gekk upp í hjólið sem ég á núna (Husqvarna TE 610 ´2000). Eftir keppnina í fyrra gaf ég það út að ég væri allveg tilbúin að gera þetta aftur til styrktar einhverjum öðrum. Þegar Keli formaður VÍK hafði samband við mig og stakk upp á að við myndum styrkja Blóðbankann fannst þér það góð hugmynd þar sem að það er allra hagur að Blóðbankinn sé öflugur banki. Opnað hefur verið fyrir skráningu í keppnina á vefsíðu VÍK (www.motocross.is) og er þátttökugjaldið 3.000 kr. sem rennur beint til Blóðbankans.

Keppnin verður með svipuðu sniði og á síðasta ári og allt lagt upp úr því að gera daginn skemmtilegan og eftirminnilegan, en sennilega var þessi keppni sú skemmtilegasta sem ég hef komið að frá upphafi míns keppnisstjóraferils sem hófst 1989. Ég og Keli skemmtum okkur sem keppnisstjórn við að láta keppendur gera ýmsar kúnstir í formi refsinga s.s. armbeygjur, auka hring í motocrossbrautinni, stíga af hjólinu og labba hring í kring um hjólið og fl..
Fyrir þá sem ekki til mín þekkja þá var ég framkvæmdarstjóri Íslandsmótsins í Enduro á árunum 1998 til 2003 og lagði grunninn af núverandi keppnisformi í Enduro. Það mín einlæg ósk og von að sjá sem flesta af keppendum sem tóku þátt í íslandsmótinu þessi fyrstu 3-5 ár sem mörkuðu fyrstu sporin í endurosögu Íslands og ekki þætti mér leiðinlegt að sjá keppendur mæta í keppnisbolum frá íslandsmeistaramótinu í enduro 1998.
Áætlað handrit af þessari keppni er: Stikkorð án útskýringa. Skemmtikeppni, mörg sæti fá verðlaun og stakir keppendur, hlaupastart (ný tegund), 2 tíma keppni, 2 í liði, liðsfélagar dragast saman á keppnisstað (a-b), ný tegund af víti og fl. Sem sagt við ætlum að skemmta okkur og láta gott af okkur leiða á laugardaginn með yfirskriftinni “ Skemmti-Blóð-Dagur”. Vonast ég til að sjá sem flesta með góða skapið í farteskinu, kveðja Hjörtur Líklegur.
P.S. Ekki er ólíklegt að fleiri en VÍK komi að þessum skemmtidegi en verið er að kanna hvort áhugi sé hjá öðrum félögum að koma að þessum degi til að auka fjölbreytni skemmtanna á Bolaöldum þennan dag. Fylgist því vel með fréttum á mótorhjólavefunum.