Tuesday, 12 July 2011 00:35

Loksins, loksins kemst braut AÍH á koppinn í Hafnarfirði

Written by 

Um helgina hófst vinna í Hafnarfirði við uppbyggingu motocrossbrautar klúbbs AÍH.  Þessi braut er búinn að vera á dagskrá hjá félaginu í að verða langan tíma eða í ein tuttugu ár.  Fyrirstaða og dráttur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gegnum tíðina var meðal annars ein ástæða þess að ég er ekki lengur meðlimur í þessu annars ágæta félagi.  Hægt að samþykkja bensínstöðvar í næsta nágrenni við íþróttavelli knattspyrnufélaga og skipulagi breytt með einu pennastriki á meðan AÍH hefur nánast verið að berjast við vindmyllur í um tuttugu ár.  AÍH mun byrja á að reisa 85cc braut á svæðinu við Rallýcrossbrautina við Krísuvíkurveg og geri ég ráð fyrir því að innan tíðar eigi eftir að rísa upp alvöru motocrossbraut, svo framarlega sem bæjaryfirvöld og mála tilbúnaður talsmanns álfa og hrauns stígi ekki fram á sjónarviðið og tefji þá framkvæmd enn frekar.  Ég óska AÍH til hamingju með langþráðan draum og hrósa þeim jafnframt fyrir þrautseigjuna að hafa haldið þessu máli til streitu allan þennan tíma.  Sum félög hefðu fyrir löngu lagt upp laupana með þetta dæmi en bjartsýni og þrautseigja AÍH hefur skilað þeim árangri að fyrsti vísir að motorcrossbraut í Hafnarfiði er að rætast.

Read 633 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:09