Laugardaginn 25. júní næstkomandi fer fram freestyle sýning í
Galtalækjarskógi en þar munu þrír erlendir ökumenn leika listir sýnir
ásamt tveimur íslenskum ökumönnum. Eins og fram hefur komið munu þeir
Martin Snellström og Micke Gullstrand mæta á klakann og leika listir
sínar fyrir íslendinga, en nú hefur einn annar ökumaður bæst í hópinn.
Ekki er búið að gefa upp nafnið á honum en hann hefur eins og hinir
tveir líka keppt á Red Bull X Fighters.
Helgina 24-26. júni verður útihátíð í Galtalækjarskógi og er sýningin
liður af Xtreme laugardegi en það eru Lex Games sem standa fyrir honum.
Ásamt freestyle sýningunni verður bmx og hjólabretta- sýning ásamt
Fleiru.
Sýningin verður á milli kl. 13:00 og 18:00. Frítt verður inn fyrir 14 ára
og yngri á laugardeginum.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um hátíðina á síðu þeirra á
facebook. Þú getur smellt hér <http://www.facebook.com/galtalaekur> til að
fara á hana.
Kynningarmyndband er hægt að sjá hér
<http://www.facebook.com/galtalaekur#%21/video/video.php?v=110250162398948>