Hér er smá upphitun fyrir ECC umferðina á Akureyri um helgina. Nokkrir enduro ökumenn kvörtuðu yfir að brautin í fyrstu umferðinni hefði verið of mikið "motocross" ef svo má að orði komast. Þetta er í Bandaríkjunum um síðustu helgi og kallast serían WORCS og er ekki ósvipuð hugsun í henni og hér heima. Dæmi hver fyrir sig en mér finnst þetta flott samsetning þó sumir "hardcore" ökumenn séu mér sjálfsagt alls ekki sammála. Dæmi hver fyrir sig en það þyrfti sárlega að koma á einni extreme endurokeppni hér á landi fyrir þá sem hafa þá hvöt í sér. Spurning hvort ekki væri hægt að koma slíkri keppni á í júlí þar sem dagskráinn fyrir þá sem keppa í enduro fer í pásu þar til í haust fyrir utan þá sem halda utan til Finnlands að keppa fyrir Íslands hönd í ISDE.