Tæplega áttatíu manns eru skráðir til leiks í þriðju og fjórðu umferð ECC (enduro cross country) sem fer fram á Akureyri laugardaginn 18 júní. Hægt er að sjá listann með keppendum með að smella hér. Skoðun hjóla hefst kl.10 og á að vera lokið í báðum flokkum kl.10:40. Sjálf keppnin hefst með ræsingu 11:20 með ræsingu í meistaraflokki ECC-1 og ECC-2 en sama fyrirkomulag er og við síðustu keppni sem haldin var í Bolaöldu en þá var ræst með mínútu millibili á milli flokka. Fer næsti flokkur, tvímenningur, út kl.11:21 og B-flokkur kl.11:22. Önnur ræsing í fjórðu umferðina er svo kl.14:10 og á keppni að vera lokið fyrir kl.16 en þá verður verðlaunaafhending.
Skora á fólk sem er á leið norður á bíladaga að skella sér á svæði KKA við rætur Hlíðarfjalls og horfa á skemmtilega keppni. En ég á ekki von á öðru en norðanmann standi sína plikkt eins og alltaf.