Saturday, 11 June 2011 13:44

BÚIÐ AÐ FRESTA KLAUSTURSKEPPNINNI!

Written by 

Að óviðráðanlegum aðstæðum er VÍK og MSÍ búið að taka þá ákvörðun að fresta keppninni sem átti að fara fram á Klaustri á morgun.  Þrátt fyrir mikla vinnu og mikinn vilja ábúanda á Ásgarði sem hafa reynt að vökva eins og þau eiga lífð að leysa, að þá hefur ekki rignt hér í tvær vikur þrátt fyrir spár og eru þetta aðstæður sem ekki er hægt að ráða við.  Í grasinu er 4-6 cm þykkt öskulag sem þyrlast upp við akstur ökutækja og þar sem á svæðinu er töluverður vindstrengur að þá er skyggni um 500-600 metrar í dag og öskuský yfir öllu.  Ráslistinn frá skráningu mun gilda áfram og verður keppnin haldin á næsta ári og vonandi verða ekki fleiri náttúruhamfarir sem hafa áhrif.  Nánari tilkynning frá stjórn VÍK og MSÍ verður send eins fljótt og auðið er ásamt nánari útlistun á hvernig haldið verður á málum hvað framhald keppnina varðar og núverandi keppnislista.  Fylgist því með á vef VÍK, www.motocross.is og öðrum vefum til að fá nánari upplýsingar.  Hér má sjá fleiri myndir af aðstæðum.

Read 918 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:09