Husaberg hefur stígið mörg ný skref upp á síðkastið við breytt eignarhald á félaginu og með tilkomu KTM sem einn af eigandi Husaberg. Í fyrra kom á markað í fyrsta sinn í langan tíma tvígengishjól frá Husaberg og mátti þar finna 250 og 300 tvígengishjól. Husaberg eru greinilega ekki hættir og hafa enn aukið flóruna og síðasta útspil þeirra er Husaberg 125 tvígengishjól. Gera má ráð fyrir að þetta hjól sé afar létt og meðfærilegt og spurning hvort við eigum eftir að sjá þetta hjól hér á landi því ekki eru til mörg 125 tvígengis endurohjól, þ.e. hjól sem voru framleidd sem endurohjól.