Monday, 30 May 2011 23:19

Ný dagsetning á Klaustur - sunnudagurinn 12 júní

Written by 

Ný dagsetning er komin á Klausturskeppnina og hefur verið ákveðið í samráði við landeigendur að keppnin fari fram um hvítasunnuhelgina 12 júní.  Þetta er stuttur fyrirvari fyrir marga en að mínu mati er þetta rétt ákvörðun hjá VÍK og landeigendum að Ásgarði að þetta sé ein af þeim fáum dagsetningum sem getur tekið við þessum fjölda.  Í haust er mjög erfiður tími því í september eru allir bændur að gera klárt fyrir að taka fé heim af fjalli og margir hverjir á fullu í göngum ásamt því að skotveiði tímabilið verður byrjar 20 ágúst og margar jarðir þarna fyrir austan í langtíma útleigu til skotveiðimanna.  Efast um að margir þeirra myndu sætta sig við rúmlega 400 hjól og traffíkinni sem því fylgir á háanna veiðitíma, sérstaklega ef um leigujörð er að ræða.  Þannig að við verðum að sýna þessu skilning þó svo að þessi dagsetning muni ekki henta öllum.  Hér áður fyrr að þá var keppnin alltaf um hvítasunnuhelgi, þannig að það má segja að við séum komnir aftur á byrjunarreit hvað dagsetninguna varðar. 

Þeir sem komast ekki eða verða að hætta við geta haft samband við VÍK og verður þá unnið niður af biðlistanum sem væntanlega munu þá hlaupa í skarðið fyrir þá sem ekki geta tekið þátt.  Þetta verður sárt fyrir suma sem beðið hafa eftir þessari kepni lengi en það er bara einfaldlega þannig að ekki er hægt að gera öllum til hæfis og ljóst að þetta átti eftir að koma niður á einhverjum.  Tel ég að það hafi ekki skipt nokkru máli hvaða dagsetning VÍK hefði valið úr þessu, það hefðu alltaf verið einhverjir sem ekki hefðu getað komist og hefðu orðið ósáttir.  Hafið bara í huga að það er hvorki við VÍK né landeigendur að Ásgarði að sakast að af þessari seinkunn hafi orðið þar sem náttúra Íslands var einkaleikarinn í þessu leikriti.

Read 736 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:04