Wednesday, 25 May 2011 09:23

Gosinu lokið í Grímsvötnum!

Written by 

Svo virðist sem gosinu í Grímsvötnum sé lokið þó svo að það hafi ekki verið gefin út formlega tilkynning þess efnis af hálfu yfirvalda.  Engin sjáanleg virkni er á svæðinu og einu bólstrarnir sem sjást eru smá gufustrókar sem stíga upp frá gígnum.  Þetta gos var stórt en stóð stutt yfir og hafði mikil áhrif, sérstaklega fyrir austan.  Þó var það bót í máli fyrir fólkið fyrir austan að þarna er búið að vera ansi hvasst og má segja að vindurinn hafi hjálpað til með að feykja öskunni á haf út en að sjálfsögðu hafði vindurinn líka slæm áhrif á þá sem búa á svæðinu því askan smaug hreinlega inn um allt.  Fyrir höndum er mikið hreingerningarstarf og spurning hvort að VÍK sameinist ekki um að hjálpa fólkinu á Ásgarði í hreinsunarstarfi sem er fyrir höndum með að skipuleggja ferð austur.  Vona að þessari goshrinu sé nú lokið í bili og að fólkið á suðausturlandi fái smá frið fyrir náttúruöflunum. 

Hér fyrir neðan má sjá mynd sem tekin var á Vatnajökli rétt við gosstöðvarnar í morgun en eins og sést á henni að þá er þetta bara gufa sem stígur þarna upp.  Myndin er fengin af láni af www.visir.is

Read 736 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:59