Monday, 23 May 2011 11:23

Svartnætti á Klaustri um hábjartann dag

Written by 

Það verður að segjast eins og er að þetta lítur ekki vel út hvað keppnina varðar um næstu helgi og er það mikill ábyrgðarhluti að ætla stefna um þúsund manns á svæði sem er lokað allri umferð vegna öskufalls.  Myndin hér að ofan var tekin á tíunda tímanum á morgun á Klaustri og skyggnið var þá rétt um 4 metrar.  Ég efast um að keppninn eða neitt henni tengt sé ofarlega í huga fólksins sem býr á þessu svæði í dag og í raun ættum við frekar að vera að ræða það hvernig við getum komið þessu fólki til hjálpar þegar þessu lýkur en að vera ræða það hvort af þessari keppni verði um næstu helgi eða ekki.  Mitt mat að það eigi að flauta þessa keppni af í bili og ákveða dagsetningu þegar við vitum hvernig aðstæður verða.  M.ö.o. fresta henni hugsanlega fram á haustið því það er alls óvíst hversu lengi þetta gos getur varið og Grímsvötn hafa áður gosið í nokkra mánuði.  En ég tek svo sem ekki ákvörðun um það.  Sendi baráttukveðju austur til fólksins sem þarf að díla við þessar erfiðu aðstæður og vonast að sjálfsögðu til að þessi linni sem allra fyrst.  Hér má smella á link með fréttinni á Mbl.is og þar sést greinilega hvaða aðstæður eru þarna.

Read 657 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:59