Þau ánægjulegu tíðindi má lesa á ýmsum síðum bæjarins að MotoMos hafi fengið vilyrði fyrir braut í Mosfellsbæ. Að sögn Valda Pastrana #270 að þá liggi væntanlegt brautarstæði mjög vel og sé allt að því í klettaborg sem hefur myndast við sprengingar á staðnum við jarðefnatöku. Valdi tjáði mér að þarna væri mikið skjól og ætti þessi braut að gefa okkur möguleika að hjóla þótt mikill vindur væri á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt sé ekki flókið að henda upp ljóskösturum á klettana sjálfa og mynda þannig lýsingu á sjálfa brautina, sem eykur tvímælalaust notagildi hennar. MotoMos er nú þegar búið að skipa brautarnefnd sem fer fljótlega í hönnunarferli á sjálfri brautinni. En nánar er hægt að lesa um þetta á síðu þeirra, sjá www.motomos.is. Nú bíður maður bara spenntur að sjá hvað gerist í Hafnarfirði, en brautarmálin þar hafa verið í vinnslu í töluverðan tíma.