Sunday, 22 May 2011 13:01

Klausturskeppnin í hættu sökum eldgos í Grímsvötnum og mikils öskufalls

Written by 

Enn og aftur láta náttúruöflin til sín kræla og er það ótrúleg tilviljun að rétt fyrir Klausturskeppnina í ár, að þá hefst aftur eldgos þarna fyrir austan.  Já, ég hélt að menn væru að grínast þegar menn fóru að tala um eldgos í Grímsvötnum í gær og virðist þetta gos vera mun öflugra en önnur gos sem hafa átt sér stað í Grímsvötnum hingað til.  Gífurlegt öskufall fylgir þessu gosi, sem er einnig ólíkt hinum eldgosunum í Grímsvötnum, og er mikið öskufall á Klaustri þar sem keppnin á að fara fram um næstu helgi.  Já, móðir náttúra lætur ekki að sér hæða og er óhætt að sega þetta sé eins og "Deja Vu" frá í fyrra.  En minnugur þess að þetta slapp í fyrra að þá er maður von í hjarta að svo verði einnig í ár.  En ef þetta heldur áfram sem horfir að þá gæti VÍK og MSÍ þurft að taka þá óvinsælu en nauðsynlegu ákvörðun um að fresta keppni þar sem ekki verði óhætt fyrir fólk að taka þátt í keppni við þessar aðstæður.  Nú verður maður að fylgjast með með fjölmiðlum og framgangi eldgosins og einnig tilkynningum frá MSÍ og VÍK um hvaða ákvörðun þeir taka á næstu dögum.  Að mínu mati verður sú ákvörðun að liggja fyrir ekki seinna en á miðvikudaginn því margir eru að koma langt að og þurfa því að fá upplýsingar um frestun í tíma.  Á þetta sérstaklega við þá útlendinga sem eru á leið til landsins til að taka þátt.  Vonum það besta en búum okkur undir það versta.

Read 940 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:00