Thursday, 19 May 2011 09:55

Stóra stundin nálgast - rétt um tvær vikur í Klaustur 2011

Written by 

Nú er óðum að renna upp sá dagur sem magir hverjir, ef ekki flestir hjólamenn hafa beðið eftir frá því vorið 2010.  Já, við erum að tala um Transatlantic Off-Road Challenge keppnina á Klaustri sem fer fram 28 maí næstkomandi.  Þannig að það eru bara rétt um 9 dagar í Klaustur og hver að verða síðastur að gera klárt fyrir sig og sína fyrir þessa keppni.  Kalli, eða Kalli í KTM, bjó til ágætis tossalista sem ég stel frá honum af fésinu en aðlaga pínu.  Bendi mönnum á að ef það er eitthvað sem þarf að gera, þ.e. stærri viðgerðir, að þá fer hver að verða síðastur með að koma hjólinu á verkstæði sem sérhæfa sig í slíku.  Bendi sérstaklega á Jón hjá B-Racing sem er staðsettur í Hraunbæ.  Hægt er að að hringja í Jón í síma 822-0450 og panta tíma.  Jón er búinn að vera í þessum bransa í ansi mörg ár og þekkir öll hjól út og inn.  Einnig eru umboð með verkstæði og hægt að leita til þeirra með viðgerðir sbr. Nitró rekur sitt verkstæði, Arctic Trucks er með viðurkennt Yamaha verkstæði, KTM er með verkstæði sem Einar "fyrrverandi" rekur og heitir Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur svo einhverjir séu nefndir.  En hér fyrir neðan má sjá tossalistann hans Katoom aðlagaðan.

1.    Setja á rétt númer á hjólin, VÍK skaffar prentuð númer og er keppendum skylt að setja þessi númer á hjólin.
2.    Athuga ástand á legum í felgum
3.    ATH. ástand á teinum, herða teina og setja nýja ef þarf
4.    Huga að ástandi á bremsuklossum að framan og aftan
5.    Huga að keðju og tannhjólum
6.    Huga að keðjusleðum og stýringum
7.    Huga að neðri demparafóðringu, ath slit
8.    Skipta um olíu og síu á vél
9.    Setja í nýtt kerti, ódýr og fyrirbyggjandi leið til þess að hjólið starti vel.
10.    Loftsíur, keppendur verða að hafa hjólið með hreinni loftsíu og taka með sér 1-2 hreinar loftsíur
11.    Hafa með auka hanska og gleraugu
12.    Hvernig er hjálmurinn?
13.    Taka með sér nægan mat sem dugir daginn, allvöru mat sem gefur kraft, banana, og nóg af vatni 3-4L. Rennandi ferskt Íslenskt vatn verður fáanlegt á Pittsvæði
14.    Kynna sér vel reglur keppninnar, ATH að vítið er 10 mínútur og að rífa kjaft við starfsmenn þýðir rautt spjald og fría ferð út af svæðinu J
15.    Góða skapið, ekki gleyma því, þetta er ekki heimsmeistarakeppnin, þetta er skemmtikeppni, landsmót okkar drullumallara og góða skapið og ungmennfélagsandinn í hávegum

Þetta er tossalistinn hans Kalla en hægt er að skoða hann í heild sinni með að smella hér.  Svona til að rifja upp hvernig þetta var í fyrra að þá er hér myndband af YouTube frá startinu og þar fyrir neðan þessi margfræga mýri sem er ekki lengur vandamál þar sem vegur hefur verið lagður í gegnum hana og ættu allir að komast á þurru þar í gegn nema fyrir þær sakir að þeim hlaupi kapp í kinn og fylgi ekki slóðanum og enda utanvegar.  Svona í lokin hengdi ég viðhengi með keppnisreglum fyrir Klaustur 2011 sem er skyldulesning fyrir alla keppendur, sjá neðst.  Niðurhjalið því, prentið það út og verið með það með ykkur á keppnissstað.

Read 1025 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:00