Í gær fór fram fyrsta og önnur umferð í ECC, sem útleggst sem endurocross country á slæmri íslensku. Fór keppnin fram í Bolaöldu og fór keppnin ágætlega fram þrátt fyrir lélega veðurspá, sem hékk þó þurr, og að ekki hafi litið vel út með mótstað nokkrum dögum fyrir keppni. Ekki verður við VÍK að sakast að hafa ekki reynt að finna nýjan keppnisstað því VÍK hafði töluvert fyrir því að leita að nýjum keppnisstað fyrir þessa endurokeppni. Eftir nokkrar ábendingar og skoðun á svæðum að þá var ljóst að hin svæðin sem gætu komið til greina voru styttra á veg komin til að þola ágang rúmlega eitthundrað keppenda og því var ákveðið að halda þetta í Bolaöldu.
Fyrir þessa keppni að þá bjuggust allir við að Kári Jónsson væri með þetta í hendi sér eins og hann hefur haft síðustu árin, svo framarlega sem hann hefur sloppið við meiðsli. Helsti keppinautur Kára til margra ára Valdimar Þórðarson hefur lítið æft síðustu ár en er þó í topp 5 í sínum flokki enn þann dag í dag. Einnig vantar Einar "púka" sem gárungar kalla orðið Einar "fyrrverandi" og Gunnar Sigurðsson, betur þekktur sem Gunni "painter" var líka fjarri góðu gamni vegna meiðsla á hné. En keppnin kom þó ekki frá þessum hefðbundnu keppinautum Kára í þetta skiptið og öllum að óvörum að þá var það Eyþór nokkur Reynsson sem var að stríða Kára og hinum keppendunum. En Eyþór er ekki þekktur fyrir þátttöku sína í endurokeppnum hingað til, heldur motocross. Leiddi Eyþór meira að segja einhverja hringi í annari umferðinni og má segja að það sem hafi endanlega orðið honum að falli í þessari keppni var að hann var með púra motocrosshjól með aðeins um 5 lítra bensíntank á meðan flestir þeir sem eru vanir að keppa í enduro voru með allt að 11 lítra bensíntank og munar um minna. Kári Jónsson var þó að keyra meira afslappað en Eyþór sem keyrði mjög aggressívt á tímabili. Aron Ómarsson var einnig að keyra mjög vel og Daði Erlingsson var líka mjög seigur.
Í B-flokknum var það Guðbjartur Magnússon, "mini-gas", sem hefur greinlega ásett sér að stríða hinum strákunum í flokknum í allt sumar. Keyrði drengurinn mjög vel og gæti alveg átt heima frekar í meistaraflokknum en í B-flokknum. Einnig get ég ekki annað en minnst á Harald Haraldsson yngri sem þrátt fyrir að bensíngjöfin hjá honum festist ítrekað í botni í fyrri umferðinni endaði í þriðja sæti í sínum flokki í meistaradeildinni. Tekið skal fram að Halli beitti óhefðbundnum aðferðum til að ná þessum árangri í gær og má segja að leynivopnið hans sé Speedo sundskýla sem hann keyrir í sér til yndisauka..:0)
Í kvennaflokknum var það Signý sem hafði þetta þrátt fyrir að að vera að díla við gangtruflanir í fyrri umferðinni, en þá varð Aníta Hauksdóttir hlutskörpust og ljóst að Aníta ætlar ekki að láta nýafstaðnar barneignir halda sér lengi frá keppnishaldi í ár. Karen Arnardóttir varð þriðja en nánari úrslit má lesa fyrir neðan og einnig má sjá heildarúrslit keppninnar á vef MSÍ eða með að smella hér. Næsta keppni fer fram á Akureyri og vonandi eigum við eftir að sjá 100 plús keppendur í ár í enduromótum ársins í ár. Tók hátt í þúsund myndir ásamt myndbandi, sem ég á ennþá eftir að klippa. Hægt að fara beint í myndalbúmið með að smella hér.
ECC1
Kári jónsson
Aron Ómarsson
Daði Erlingsson
Valdimar Þórðarson
Gunnlaugur Rafn Björnsson
Árni Gunnar
Stefán Gunnarsson
Brynjar Þór Gunnarsson
Haukur Ómarsson
Axel Arndal
Birgir Georgsson
Haukur Þorsteinsson
ECC2
Eyþór Reynisson
Bjarki Sigurðsson
Haraldur Örn Haraldsson
Jónas Stefánsson
Örn Sævar Hilmarsson
Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson
Þórarinn Ólafsson
Pétur Smárason
Þorri Jónsson
Jón Jacobsen
Þorgeir Ólafsson
Tvímenningur
Atli Már - Gunni Sölva
Kristófer Finns - Baldvin Gunnarss
Eiríkur Eiríkss - Jón Kristinn
Björn Ómar - Jóhannes Hanssen
Helgi Már - Garðar Atli