Monday, 09 May 2011 10:46

Sögulegu AMA Supercross tímabili lokið

Written by 

Þá er AMA Supercross tímabilið búið að renna sitt skeið fyrir árið 2011 og verður maður að segja, því miður er þetta búið í ár.  Spennan hefur verið mögnuð í vetur og hafa fá ár frá því að ég byrjaði að fylgjast með þessu verið jafn spennandi.  Menn taka svo djúpt í árina að fullyrða að þetta sé mest spennandi tímabil "ever" en ég tek slíku með smá fyrirvara því menn muna alltaf mest eftir því sem er nýskeð og gleyma því sem var fyrir nokkrum árum fyrir utan að öll umfjöllun er orðin mun meiri í dag en var með hjálp vefmiðla.  Nú tekur við AMA Outdoors og miðað við þá aðila sem hafa tilkynnt þátttöku sína að þá lítur út fyrir að það verði ekki síður spennandi en supercrossið.   Persónulega er ég meira fyrir Outdoors en supercrossið.  En víkjum aftur að úrslitum dagins í Las Vegas.

West Lites - Töluverð spenna var fyrir þessa keppni því stutt var á milli efstu manna í stigakeppninni og munaði t.d. ekki nema 2 stigum á Broc Tickle og Eli Tomac.  En það var þýska undrabarnið Ken Roczen sem stal senunni þetta kvöld að mínu mati og náði hann bestri ræsingu og þrátt fyrir að hafa dottið að þá hreinlega stakk hann alla aðra keppendur af og sigraði mjög örugglega.  Er þetta fyrsti sigur KTM í AMA Supercrossinu frá upphafi og ríkti mikill fögnuður í herbúðum þeirra.  Af titil keppendunum má segja að Eli Tomac hafi verið í betri stöðu framan af og virtist vera með þetta því Broc Tickle var tveimur sætum fyrir aftan hann og komst Eli Tomac alla leið upp í þriðja sætið.  En þá fóru aðrir ökumenn að sækja að honum grimmt og endaði ballið þannig að Broc Tickle komst fram úr honum og gerði gott betur því hann endaði í öðru sæti á meðan Eli Tomac varð fjórði.  Við það varð Broc Tickle West Lites AMA Supercrossmeistari 2011.  Vesthanhafs eru þegar komnar upp samsæriskenningar um að ökumenn eins og Kyle Gunningham og Cole Seeley hafi hjálpað Broc Tickle og fannst mörgum einkennilegt hversu auðveldlega hann átti leið framhjá þeim tveimur.  Það sem þykir renna stoðum undir þessar sögusagnir er vinskapur þeirra, en hvað sem sagt verður og sama hversu margar samsæriskenningar menn vilja kasta á loft að þá sigraði Broc Tickle yfir heildina og þessi eina keppni ein og sér gerði ekki útslagið með titilinn heldur allt tímabilið þó svo að þetta hafi kannski verið ein mikilvægasta keppnina fyrir hann.

East Lites - Fyrir mótið var ljóst að eitthvað stórkostlegt þyrfti að gerast til að Justin Barcia myndi ekki ná að tryggja sér titilinn, en hann leiddi stigakeppnina með 20 stiga forskoti á næsta keppinaut Dean Wilson.  Justin Barcia náði bestri ræsingu á meðan Dean Wilson sat algjörlega eftir og var í kringum ellefta sæti eftir fyrsta hring.  Þó varð smá spenna í þessu þegar Justin Barcia datt snemma í moto-inu en það var ekki alvarlegt og keyrði hann eftir það með öryggið í huga með það eitt að leiðarljósi að tryggja sér titilinn.  Endaði hann þriðji og tryggði sér með því East Lites AMA Supercross titilinn í ár.  Í ljósi sigursins vænti ég þess að pilturinn hafi fengið smá bónus og hafi því efni á að fara í klippingu en drengurinn er eins og smápíka á höfuðleðrinu og satt að segja fer þetta honum alls ekki.  Baráttann um sigurinn í þessu moto-i var því á milli Ryan Sipes og Blake Baggett, en Ryan Sipes leiddi frá því að Justin Barcia laut í mold.  Hélt hann forystunni alveg nánast fram að síðasta hring þegar hann missir Blake Baggett framúr sér eftir að sá síðarnefndi fékk opnun og skellti sér innan á hann.  Blake Baggett sigraði því og Ryan Sipes varð annar og var það sorglegt fyrir Ryan Sipes en endurspeglar tímabilið hjá þessum annars ágæta ökumanni.  Búinn að vera langhraðastur í tímatökum og æfingum en ekki getað klárað að fullu þar sem það hefur skipt máli.

West/East Lites Shootout - Þessi keppni var með öðru móti en verið hefur síðustu ár og nú var það þannig að 9 bestu í West og East Lites flokknum tryggðu sér þátttöku og síðan voru það tveir ökumenn sem komust í gegnu LCQ sem fengu líka að taka þátt.  Skemmst er frá því að segja að nú loksins náði Ryan Sipes að "deliver-a" og sigraði hann í þessari sameiginlegri keppni.  Cole Seeley varð annar og Ken Roczen varð þriðji.  Enginn af nýkrýndum meisturum í West eða East Lites flokknum komst á pall í þessari keppni og var Brock Tickle tíundi og Justin Barcia sextándi enda kannski ennþá í sigurvímu og erfitt að einbeita sér í kjölfar þess að vera búnir að landa titlinum í stigakeppni ökumanna.

450 flokkurinn - Það var Mike Alessi sem var með bestu ræsinguna en fljótlega missti hann forystuna til Kevin Windham sem var búinn að vera að keyra fantavel í Las Vegas þess helgi.  Fljótlega varð þó ljóst að hann fengi félagsskap því James Stewart var hraðari og náði Kevin Windham í hring fjögur og tók framúr honum í einum vúpsakaflanum.  Það var samt greinlegt að Kevin Windham ætlaði ekkert að gera þetta auðvelt fyrir James Stewart og var fast á hæla hans.  Þá gerðist það sem hefur gerst því miður allt of oft í vetur hjá James Stewart.  Hann fer niður "big time" í sjötta hring í vúpsakaflanum og vill það ekki betur til en að Kevin Windham fer niður líka í kjölfarið þar sem hann var í nákvæmlega sömu línu og James Stewart, hraðinn of mikill og gat ekki forðað árekstri.  Þar með var kvöldið búið hjá þessum tveimur frábæru ökumönnum.  Ryan Villopoto náði því forystunni en Chad Reed sótti án afláts á hann og fyrir rest, gaf Ryan Villopoto eftir og Chad Reed náði forystunni.  Sigraði Chad Reed síðasta mót ársins en Ryan Villopoto varð þriðji og dugði það honum til að landa sínu fyrsta AMA Supercross titli í 450 flokknum.  Mikil upphefð fyrir þennan frábæra ökumann sem hefur mátt muna tímana tvenna í þessu sporti og hefur verið að díla við mjög erfið meiðsl síðustu tvö ár.  Ryan Dungey, þáverandi meistari eftir kvöldið, varð að sætta sig við annað sætið og varð hann í þriðja sæti til meistara á eftir Chad Reed og Ryan Villopoto.

Þar með er ljóst hvernig eitt skemmtilegast tímabil síðustu ár endaði og er Ryan Villopoto vel að titlinum kominn.  Hvað hraðasta ökumenn jarðar varðar, James Stewart, að þá held ég að hann verði að taka sig aðeins saman í andlitinu og átta sig á því að það að keppa ekki utanhús í motocrossinu er líklegast að koma aftan að pilti þetta árið og er hann að gera allt of mikið af mistökum.  Ég hef aldrei séð hann jafn mistækan eins og þetta árið í supercrossinu og ætti það að vera umhugsunarefni fyrir James Stewart.  James Stewart er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann keppir í AMA Outdoors og hangir það allt á því hvort hann fái einhvern spons til að gera slíkt því annars yrði þetta að koma úr hans eigin vasa.  Ef hann fer ekki út, að þá tel ég að við séum búnir að verða að upphafi hnignunnar James Stewart síðustu tvö ár og eftir það muni leiðin liggja niður á við.  Ekki það að hann er ennþá sá hraðasti en hann heldur það ekki út í 20 hringi í supercrossinu og er að gera mjög afdrífarík mistök, fyrir utan að aðrir ökumenn eins og Ryan Villopoto, Ryan Dungey o.fl. hafa bætt sig mjög mikið og er ekki lengur hræddir við James Stewart.

Read 820 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:51