Friday, 06 May 2011 15:15

Skráning hafin í fyrstu endurokeppni ársins sem fer fram í Bolaöldu

Written by 

Skráning fyrir 1. og 2. umferð Íslandsmóts MSÍ í Enduro CC hefur verið opnuð á vef MSÍ.  Skráningarkerfið verður opið til kl: 21:00 þriðjudaginn 10. maí.  Engar undantekningar verða gerðar á skráningu eftir að skráningartíma líkur, keppendur þurfa að prófa innskráningu á vef MSÍ, www.msisport.is, tímanlega og tilkynna með 1-2 sólahrings fyrirvara ef innskráning virkar ekki þannig að hægt sé að bregðast við vandamálum sem upp koma tímanlega.

Keppnisgjöld eru óbreytt frá 2010, B flokkur, B Kvenna, B 40+ og B 85cc greiða 5.000 kr.  Meistaraflokkur E-CC1 og E-CC2 greiða 6.000 kr. og Tvímenningur 10.000 kr.  Varðandi skráningu í Tvímenningsflokk þá skráir einn keppandi liðið og sendir tilkynningu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. um liðsfélaga.  MSÍ útvegar Tvímenningsliðum keppnisnúmer eftir óskum liðs en sækja þarf um númer á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir viðkomandi lið, muna að tilkynna fullt nafn þess sem á skráninguna og liðsfélaga.

Allir keppendur sem taka þátt í Íslandsmeistarkeppnum MSÍ þurfa að hafa greitt félagsgjöld til síns aðildarfélags fyrir viðkomandi keppnistímabil.

Aksturstími fyrir Meistaradeild E-CC1 / E-CC2 og Tvímenning er 2 x 90 mín.  Aksturstími fyrir B flokka er 2x 45 mín.

Nánari keppnisdagskrá ásamt uppfærslu á reglum mun birtast á vef MSÍ á næstu dögum.

Read 656 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:56