Lausleg þýðing á reynsluakstri Motorcross Action Magazine á Kawasaki KX250F árgerð 2008. Ég endurtek, til öryggis, þessa gömlu lummu að þetta er ekki persónuleg skoðun míns og ítreka að þetta er lausleg þýðing úr greininni. Ég hef átt Kawasaki KX250F árg.´07 og hafði ekkert upp á það hjól að klaga.
Þú sjálfsagt heldur að Honda CRF250 sé búið að vera yfirburðar hjól síðan það kom á markað árið 2004 í 250cc flokki, og einnig í ljósi markaðastöðu þess í Bandaríkjunum. En ekkert er meir fjarri raunveruleikanum. Þeir sem hafa verið sannir sigurvegarar í þessum flokki hafa verið Yamaha og Kawasaki. Yamaha fann upp þennan flokk árið 2002 og átti þennan flokk út árið 2005. Þegar Suzuki, Kawasaki og Honda fóru svo að spila með árið 2004. Yamaha byrjaði á að jarða samkeppnina í byrjun í þessum flokki og það var ekki fyrr en í raun árið 2006 þegar að Kawasaki hætti samstarfi sínu við Suzuki sem virkilega eitthvað virkilega nýtt fór að gerast á þessum markaði. Má með sanni segja að Kawasaki hafi náð öllum í bólinu. Yamaha var orðið værukært, Honda var að berjast við áreiðanleika hjólana og Suzuki kom með sitt módel 2005, sem þá var árgerð 2006. Það sem Kawasaki gerði var að koma með á sjónarsviðið mótor sem allir aðrir stundu yfir. Mótorinn á KX250F kemur mjög ákveðið inn í miðsnúningssviði vélarinnar og heldur nánast endalaust áfram. Í flokki þar sem hestöfl táknar konungdæmi að þá varð 2006 hjólið KX250F konungsborið og það byggðist nánast eingöngu á aflsviði vélarinnar (powerband). Ekki versnaði mótorinn fyrir 2007 árgerðina og nú var stóra spurninginn sú, hvort að KX250F væri ennþá með öflulegast mótorinn?
Hvað er nýtt á KX250F árg.´08?
Allur kassinn í kringum vélina var styrktur, til að auka áreiðanleika. "Kickstartið" fékk á sig meira kjöt, eða sem nam 3,5 mm. Ástandið var hækkað sem nam þremur gráðum sem auðveldar ökumanni skiptinguna. Þeir juku gæði "head gasket" með því velja í það betra efni. "Muffler" í pústinu voru vafðir þykkari til að minnka hávaðann. Aukið bil var sett á mótorstandinn í því skyni að gera hjólið meðfærilegra. Dempararnir fengu nýja yfirhalningu, gaflarnir 0,5mm þykkri og nýtt kerfi var sett á til að taka afgangsgas af demparunum í því skyni að halda þrýstingi. Einnig hækkuðu þeir stöðu ökumanns til að gera hjólið kvikara.
Hvernig er þá vélin í 2008 árgerðinni versus 2007?
Vélin er nánast sú sama og í 2007 hjólinu og í raun 2006 hjólinu. Í dyno prófun var hún hrein kópía af 2007 og að okkar mati nánast klónuð. Eini munurinn sem reynsluökumenn fundu var að hjólið virkaði mýkra frá miðju og upp úr. KX250F kemur inn öskrandi í 7000 snúningum, þar sem hröðunin er hvað mest, og hættir ekki fyrr en í 13000 snúningum. Þessi mótor hangir ekki í leti, eða eykur hraðan rólega og slær út. Þetta er púra vinnuhestur. Það er ekki mikið hægt að segja um vélina upp í 7000 snúninga þar sem hún er ekki að gera neitt að ráði. Eftir 7000 snúninga rífur vélin vel í og sýnir þá virkilega hvað í henni býr.
Er þá KX250F ennþá með bestu vélina að mati blaðsins í 250cc fjórgengishjólum?
Að okkar mati, Já! Hún kemur ekki eins snemma inn og RM-Z250, meðfærileikann í CRF250, togið YZ250F eða mýktina í 250SXF. En það sem KX250F hefur framyfir er að þetta er ekta keppnisaflsvið. Hún kemur inn með látum og tekur á flug. Þetta er besta aflsvið (powerband) fyrir keppnisökumann.
Hver er þá helsti karakter einkenni hjólsins?
Aflið! Ef þetta hjól væri mjúkt, ökumannsvænt eða með mikið tog, að þá væri þetta hjól bara hálfdrættingar á við það sem það er í dag. Vélin ein og sér skyggir á allt annað þegar kemur að þessu hjóli. Þetta hjól hefur bara eitt einkenni og það er afl.
Er þetta þá hjól án galla?
Nei, aldeilis ekki. Það eru fjórir áberandi gallar á hjólinu, nánast þeir sömu og voru á 2007 hjólinu.
- Aksturseiginleikar - Þetta er langt frá því að vera besta hjólið til að "höndla" í 250cc fjórgengsiflokknum. Þann heiður á Suzuki RM-Z250. Sem betur fer hefur sú aðgerð Kawasaki að bæta mótorfestingarnar að framan minnkað tilhneigingu hjólsins að "ýta inn í miðju" eins og þeir kalla það. Langir boltar sem þeir hafa notað virðast hafa aukið gripið að framan
- Skiptingin - Að skipta úr öðrum gír yfir í þriðja endar því miður oftast að skipta úr öðrum gír í annan gír... Of mikill snúningar, ekki nógu mikið pláss og asnalegt "head" kemur oft út á þessa misskiptingu. Þetta á við fleiri gíra en er mest áberandi úr öðrum í þriðja gír. Ef þú gefur þér tíma, að þá lendir þú ekki í neinum vandamálum.
- Gírhlutfallið - Okkur finnst gírhlutfallið ekki gott og þá sérstaklega bilið á milli annars og þriðja gírs. Þetta er allt of mikið bil fyrir 35 hestöfl. Eina leiðin til að laga það er að skipta um afturtannhjól
- "Wiring harness" - Ending á þessu var einungis í 4 tíma, sem er afskaplega slappt. Hjólið fór í gang en það hélst ekki í gangi.
Hvaða breytingar myndum við gera við hjólið?
Pro Circuit Shock linkage - Myndum byrja á að henda út "shock linkage" og fá okkur Pro Circuit KX Shock linkage.
22 mm offsett tiple clamps - Síðan myndum við henda út 24,5 mm stýrisklemmunni og fá okkur frá þriðja aðila 22 mm stýrisklemmu.
Gírarnir - Ekki einu sini reyna að keppa með afturtannhjólið frá framleiðandanum. Það þarf svo sannarlega eina tönn í viðbót miðað við þetta gírhlutfall.
Pústurör - Ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum, að þá töluðum við um að snýst allt um hestöfl á KX250F. Til að bæta fyrir það að Kawasaki gerði hjólið hljóðlátara, að þá nærðu því til baka með því að skipta um pústurör og þá sérstaklega að aftan.
Hefur þá Kawasaki eitthvað náð að laga aksturseiginleika hjólsins?
Já, og nei. Þeir hafa náð að gera það þannig að það fyrirgefi ökumanninum meira og þar með er það nánast upptalið. Það er ekki erfitt að keyra þetta hjól en þetta hjól er langt frá því að vera það besta sem þú getur fengið hvað aksturseiginleika varðar.
Hversu góðir eru dempararnir á hjólinu?
Ólíkt KX450F, sem notar Kayaba íhluti, að þá er KX250F með demparakerfi frá Showa. Þó að við höldum ekki vatni yfir Kayaba SSS dótinu, að þá kom þessi uppsetning á dempurunum okkur nokkuð á óvart. Samt teljum við að hraðir og stórir ökumenn muni eiga í vandræðum með þá og þeir slái saman. En fyrir meðalökumann að þá ætti þessi uppsetning að vera í lagi.
Hvað hötuðum við?
- Gírana - eina sem hægt er að gera er að skipta um afturtannhjól og bæta við einni tönn að aftan.
- Gírstönginn - Við vissum að við vorum í vondum málum víst að Kawasaki hafði breytt staðsetningunni, en útkoman er nánast hjákátleg og ótrúlegt að þeir skyldi ekki hafa meira úr að moða í þróunardeildinni hjá Kawasaki en að færa þetta aðeins til.
Hvað vorum við ánægðir með?
- Felgurnar - hjólið rokkar feitt á svörtu felgunum en eftir að hafa komist í snertingu við felgujárn nokkrum sinnum að þá missa þær glansinn
- Stýrið - við viljum 7/8 tommu stýri, ekkert kjaftæði
- Vatnskassahlífarnar
- "Muffler" - en AMA hljóðprófun sýndi að hjólið er eingöngu 95,5 db og er eitt hljóðlátasta hjólið á markaðinum. En algengt er að hjólin séu í kringum 98 db.
Hvað fannst okkur svo í raun um hjólið?
Við erum hrifnir af þessu hjóli og þá sérstaklega mótornum. Aflsviðið er sá hluti hjólsins sem allir voru í ánægðastir með. Í raun teljum við að Kawasaki hafi bara gert nægjanlega mikið til að halda sér í toppbaráttuni í samkeppninni, ekkert meira en það. Það er hættuleg stefna og það var einmitt nákvæmlega þannig árið 2006 þegar að Kawasaki náði hinum í bólinu. Hvað akstureiginleika varðar, að þá eru þeir í lagi, ekkert meira en það. En mótorinn gerir það að verkum að þú fyrirgefur hjólinu hvað aksturseiginleikana varðar.