Monday, 02 May 2011 13:23

Hjálp! - svæði óskast undir fyrstu endurokeppni ársins

Written by 

VÍK/VÍR og MSÍ óska eftir svæði/svæðum til að halda fyrstu endurokeppni ársins.  Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn að velunnarar sportsins komi fram í dagsljósið og aðstoði við að finna svæði til keppnishalds.  Ástandið hér á suðvesturhornin er þess eðlis að það hefur vorað óvenju seint of svo má að orði komast og Bolaalda er hreinlega ekki í neinu keppnisstandi eins og staðan er í dag.  Miðað við að það er spáð rigningu strax á föstudag aftur að þá eru minni líkur en meiri að það verði ekki hægt að keppa þar 14 maí.  Það er ennþá snjór í Reykjavík, sem að vísu er að taka upp, en um leið og þú kemur austur fyrir fjall að þá er allt autt.  VÍK og MSÍ eru að leita af svæði sem er í max 100-150 km frá Reykjavík.  Ef þú hefur vitneskju um svæði eða ert tilbúinn að leyfa eina keppni fyrir um það bil 100 keppendur, að þá yrði það afar vel þegið.  Hægt er að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .  Einnig er hægt að hafa samband við mig um ábendingar um svæði í síma 896-5957 eða í netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

VÍK fékk vilyrði um svæði fyrir helgi upp í Grímsnesi en sökum aurbleytu að þá er ekki hægt að nota það svæði.  Einnig var farið og aðstæður skoðaðar í Bakkafjöru en allt kom fyrir ekki og er mikil sandbleyta þar og pollar.  Þannig að það er ekki eins og það hafi ekki verið gerð tilraun til að finna svæði.  Þó er möguleiki að halda keppnina í Þorlákshöfn en þá þarf að koma til breytingar á núverandi braut fyrir utan að margir keppendur virðast hræðast sandinn.  Einnig er fjarlægur möguleiki að hægt verði að keppa á Sólbrekkusvæðinu og verður sá möguleiki skoðaður í dag og á morgun en miðað við þá bleytu sem er í jarðveginum hér í kring í nágrenni Reykjavíkur að þá eru menn ekki mjög bjartsýnir að af því geti orðið. 

Read 823 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:57