Í gær fór fram næstsíðasta umferðin í AMA Supercrossinu og er óhætt að segja að eftir þessa helgi eru línur farnar að skýrast hvað varðar titilkeppendur til meistara. Fyrir helgina voru það fjórir keppendur sem gátu í raun gert tilkall til meistaratitilsins í 450 flokknum en eftir helgina að þá í raun má segja að þetta liggi á herðum tveggja einstaklinga. Í West Lites flokknum að þá þéttist aftur á móti listinn í efstum sætum og nýr aðili sem hefur hingað til ekki verið álitinn titilkeppandi er komin í lykilstöðu hvað meistaratitilinn varðar. Þannig að það er ljóst að spennan er gífurleg fyrir síðustu umferðina sem fer næst fram í Las Vegas. Þá munum við í fyrsta sinn í sögu AMA Supercrossins sjá meistara krýnda í báðum flokkum, þ.e. West og East lites flokknum. Í East lites flokknum er það Justin Barcia sem er með pálmann í höndunum. En víkjum nú aftur að keppninni í gær.
West lites - Ken Roczen birtist aftur í AMA Supercrossinu í þessum flokki eftir smá fjarveru og ætlar sér að klára síðustu tvær keppnirnar og setti hann strax mikið mark á keppnina í gær. Náði hann holuskotinu í fyrri undanriðlinum en kom of hratt í eina beygjuna og missti forystuna fljótlega. Ryan Morais sigraði í fyrsta sinn í sínum undanriðli í ár, Ken Roczen varð annar og Eli Tomac varð þriðji. Í hinum riðlinum varð það Cole Seeley sem sigraði, Kyle Gunningham varð annar og Broc Tickle þriðji.
Í aðalkeppninni varð það aftur á móti Eli Tomac sem var með bestu ræsinguna en fast á hæla hans koma Josh Hansen sem var efstur í stigakeppninni til West lites meistara fyrir þessa keppni. Broc Tickle var þarna líka meðal efstu mann og Ken Roczen þar á meðal líka. Josh Hansen gerði strax tilraun til að fara fram úr Eli Tomac og var hún í hans stíl þar sem hann hefur oftar en ekki eingöngu hugsað um að taka andstæðinga sína út úr keppni frekar en að komast framúr þeim á eigin verðleikum. Í þetta skipti skellti hann sér mjög harkalega inn á Eli Tomac en í þetta skiptið var Eli Tomac tilbúinn og stóð þess áras af sér en það vildi ekki betur til fyrir Josh Hansen en það að hann endaði í jörðinni og henti þar með frá sér öllum möguleika sínum á titli í West lites flokknum. Var hann orðin nánast síðastur því hann drap líka á hjólinu. Já, það er stundum sagt, "what goes around, comes around" og á það ágætlega við í þessu tilviki. Eli Tomac náði aftur á móti að auka forskot sitt og á meðan að þá lagði Ken Roczen til atlögu við Borc Tickle og fór framúr honum. Ken Roczen og Broc Tickle áttu eftir að eigast við það sem eftir lifði keppni, en var það allt á heiðarlegan máta. Eitthvað annað en hægt er að segja um aksturslag Josh Hansen. Náði Brock Tickle ekki framúr Ken Roczen þó svo að hann hefði ansi oft verið nálægt því. Úrslit dagsins urðu því þannig að Eli Tomac vann sinn þriðja sigur í þessum flokki og er allt í einu kominn í lykilstöðu í baráttunni um meistaratitilinn. Ken Roczen náði sínum besta árangri í þessum flokki og endaði annar. Broc Tickle mátti sætta sig við að enda í þriðja sæti eftir mikla en mjög skemmtilega baráttu við Ken Roczen. Broc Tickle er efstur í stigakeppninni til meistara en hann leiðir eingöngu með þremur stigum og ef Eli Tomac sigrar að þá gildir sú regla að sá er meistari sem hefur sigrað oftast og þá er Eli Tomac með vinninginn á Broc Tickle.
450 flokkurinn - Þá erum við kominn í flokkinn sem flestir fylgjast með og erum menn almennt á því að aldrei í sögunni hafi þessi flokkur verið jafn spennandi þar sem fimm keppendur hafa verið í toppbaráttunni allan tímann, eða þar til Trey Canard varð úr leik vegna meiðsla. Enn sem fyrr var James Stewart með hraðasta tíma í tímatökunni og sigraði hann einnig nokkuð örugglega í sínum undanriðli þar sem Ryan Dungey varð annar og Davi Millsaps varð þriðji. Í hinum riðlinum varð það Chad Reed sem sigraði, Kevin Windham varð annar og Ryan Villopoto varð þriðji.
Í aðalkeppninni að þá varð það James Stewart sem náði bestri ræsingu en fast á hæla hans kom Chad Reed sem virtist ekki ætla að sleppa honum úr augsýn í þetta skiptið. Ryan Villopoto var einnig ekki langt undan og setti undir sig hausinn og tók að sækja fram. Náði hann Chad Reed og fór fram úr honum í sjöunda hring. Hóf hann nú að sækja á James Stewart sem gerði enn einu sinni mistök og endaði á grönunum enn og aftur. Er þetta að ég held í fimmta sinn í vetur sem hann kastar frá sér sigrinum vegna eigin mistaka. Var hann fljótur aftur á bak en missti í æsingnum strax aftur stjórn á hjólinu og nú fór það mun verr en í fyrra skiptið og þurfti hann að fara í pittinn til að láta laga hjólið þar sem það var allt í keng eftir fallið í vúpsakaflanum þar sem hann fór niður í seinna skiptið. Á meðan gerði Chad Reed tilraun til að sækja á Ryan Villopoto og var alveg kominn á afturdekkið hjá honum í blárestina. Lengra komast hann ekki og sigraði Ryan Villopoto því einn mikilvægasta sigur sinn í þessari keppni í vetur og leiðir nú stigabaráttuna með níu stigum. Dugar honum að verða í fimmta sæti eða betra til að vinna AMA Supercrosstitilinn í 450 flokknum í fyrsta sinn. Chad Reed varð að sætta sig við annað sætið í dag og þarf sárlega hjálp í síðustu keppninni til að eiga möguleika á að verða meistari í ár. En það verður ekki af Chad Reed tekið að hann hefur komið einna mesta á óvart í ár miðað við spár og miðað við að hann var ekki með neinn samning við lið fyrir upphaf tímabilsins og stofnaði því sitt eigið lið til að geta tekið þátt. Nú er hann örfáum stigum frá því að verða meistari í þriðja sinn. Já, það skyldi enginn afskrifa þennan dreng. Ryan Dungey endaði þriðji og má segja að titilvonir hans séu úr sögunni. James Stewart aftur á móti endaði í tíunda sæti og þarf nánast kraftaverk til þess að hann verði meistari þó svo fræðilega er það ennþá möguleiki. Aftur á móti væri Ryan Dungey líklegast í bestri stöðu og efstur ef hann hefði ekki þurft að hætta keppni í einni keppninni þegar keðjann hann slitnaði og allt fór í steik. Já, þá væri hann mjög líklega efstur að stigum eftir allt saman þó svo að hann sé eingöngu búinn að vinna einn sigur í ár.
Hér fyrir neðan eru svo heildarúrslit, staðan í stigakeppninni og viðtöl við ökumenn.
Results
2011 Monster Energy AMA Supercross
Salt Lake City, UT
Supercross Lites Heat 1
1. Ryan Morais
2. Ken Roczen
3. Eli Tomac
4. Josh Hansen
5. Nick Paluzzi
6. Tyla Rattray
7. Ben Evans
8. Landen Powell
9. Donald Vawser
Supercross Lites Heat 2
1. Cole Seely
2. Kyle Cunningham
3. Broc Tickle
4. Martin Davalos
5. Travis Baker
6. Bruce Rutherford
7. Topher Ingalls
8. Casey Hinson
9. Jake Canada
Supercross Heat 1
1. Chad Reed
2. Kevin Windham
3. Ryan Villopoto
4. Jake Weimer
5. Kyle Regal
6. Justin Brayton
7. Tommy Hahn
8. Michael Byrne
9. Ben LaMay
Supercross Heat 2
1. James Stewart
2. Ryan Dungey
3. Davi Millsaps
4. Andrew Short
5. Nick Wey
6. Mike Alessi
7. Robert Kiniry
8. Jason Thomas
9. Chris Blose
Supercross Lites LCQ
1. Tommy Weeck
2. Tevin Tapia
Supercross LCQ
1. Tyler Bowers
2. Cole Siebler
Supercross Lites Main Event
1. Eli Tomac (Honda)
2. Ken Roczen (KTM)
3. Broc Tickle (Kawasaki)
4. Cole Seely (Honda)
5. Kyle Cunningham (Yamaha)
6. Tyla Rattray (Kawasaki)
7. Ryan Morais (Suzuki)
8. Martin Davalos (Suzuki)
9. Travis Baker (Honda)
10. Ben Evans (Kawasaki)
11. Tommy Weeck (Honda)
12. Jake Canada (Kawasaki)
13. Josh Hansen (Kawasaki)
14. Topher Ingalls (Honda)
15. Bruce Rutherford (Kawasaki)
16. Casey Hinson (KTM)
17. Donald Vawser (Kawasaki)
18. Landen Powell (Honda)
19. Tevin Tapia (KTM)
20. Nick Paluzzi (Yamaha)
Supercross Main Event
1. Ryan Villopoto (Kawasaki)
2. Chad Reed (Honda)
3. Ryan Dungey (Suzuki)
4. Andrew Short (KTM)
5. Davi Millsaps (Yamaha)
6. Kevin Windham (Honda)
7. Jake Weimer (Kawasaki)
8. Tommy Hahn (Yamaha)
9. Justin Brayton (Yamaha)
10. James Stewart (Yamaha)
11. Nick Wey (Yamaha)
12. Kyle Regal (Yamaha)
13. Michael Byrne (Suzuki)
14. Chris Blose (Kawasaki)
15. Tyler Bowers (Kawasaki)
16. Jason Thomas (Suzuki)
17. Robert Kiniry (Kawasaki)
18. Cole Siebler (Kawasaki)
19. Ben LaMay (Yamaha)
20. Mike Alessi (KTM)
Supercross Lites West Point Standings
1. Broc Tickle 165
2. Eli Tomac 163
3. Josh Hansen 151
4. Cole Seely 131
5. Ryan Morais 124
6. Tyla Rattray 111
7. Ken Roczen 105
8. Kyle Cunningham 105
9. Martin Davalos 95
10. Ben Evans 68
Supercross Point Standings
1. Ryan Villopoto 318
2. Chad Reed 309
3. Ryan Dungey 306
4. James Stewart 295
5. Trey Canard 255
6. Andrew Short 214
7. Kevin Windham 202
8. Davi Millsaps 172
9. Justin Brayton 153
10. Nick Wey 139