Samkvæmt Herr Binnz Morgan sjálfum og hef ég þetta eftir honum á fésinu, að þá er búið að opna motocrossbrautina á Sauðárkróki. Búið er að renna yfir hana og ætlar pilturinn að henda inn myndbandi í kvöld eða á morgun á www.morgan.is. Brautin er nokkuð grýtt og væri það ekki verra að þeir sem hyggjast hjóla í henni næstu daga, vikur, að þeir tæku sig til að löbbuðu hring og týndu úr stærstu steinana áður en þeir æddu af stað svona öryggisins vegna. Myndin með þessari frétt er fengin af láni á fésbókarsíðu klúbbsins og var tekin árið 2009.