Miklar breytingar hafa orðið á brautinni fyrir austan fyrir Klausturskeppnina sem fer fram 28 maí. Ábúendur á Ásgarði hafa ekki setið auðum höndum frekar en fyrri daginn og er mýrinn nánast horfin með öllu. Já, þetta er ekki aprílgabb. Búið er að ýta upp fullt af jarðveg og búa til "götu" í gegnum mýrina og skildist mér á þeim sem keyrðu hana í dag að hún væri hreint út sagt frábær. Einnig er fólkið á bænum búið að smíða um átta kósett, ef ég taldi rétt, og verður gjörbreytt aðstaða fyrir keppendur í ár. Búið er að afmarka pittsvæðið mun betur en síðast og verður hart tekið á því að fólk virði ákveðnar umgengnisreglur á pittsvæðinu eða eiga á hættu að vera sett í víti og ítrekuð víti þýðir einfaldlega brottrekstur úr keppni. Einnig á að koma í veg fyrir að aðstandendur og áhorfendur hlaupi þvers og kruss yfir brautina með tilheyrandi slysahættu fyrir sig og keppendur. Það er ekkert grín að fá rúmlega 100 kg. stálfák + ökumann á 30-50 km hraða á sig og verða áhorfendur hreinlega að virða það að þetta er óæskilegt. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af mýrinni og pittsvæðinu.


